8 mánuðir á milli blogga...Guðrún Kristinsdóttir

.... er það nokkuð of mikið?

Annars er bara allt fínt Laughing Ég er enn í skólanum en er farin að sjá fyrir endann á náminu, ef allt gengur upp þá er ekki nema rétt rúmt ár í útskrift! Ohhh hvað ég hlakka til Smile. Eins og það er gaman að vera í skóla, þá er þetta mikið álag og ég er með mikið samviskubit yfir því að sinna ekki börnunum mínum og heimili nóg.... en þá er bara um að gera að nýta þann tíma sem hægt er - og ég er líka alveg að detta inn í sumarfrí!

Erla Dögg er í Borgó og gengur bara vel. Hún er alltaf með honum Kidda sínum, góður og flottur strákur það LaughingÞað er roslalegur dugnaður í henni, hún er alltaf að vinna með skólanum á KFC í Mosó, svo að ef ykkur langar að hitta sætu skvísuna mína þá er um að gera að fá sér smá kjúlla á KFC í  Mosó Smile

Diddi er búinn að eignast bíl og það er auðvitað ávísun á að múttan er með hjartað í buxunum meira og minna....... en ég bið og vona að hann fari sér og öðrum ekki að voða. Hann er búinn að bjóða mér nokkrum sinnum í bíltúr og hann keyrði mjög vel með mig í bílnum Wink Hann á líka flotta kærustu, hana Marsibil og hann er mikið í Keflavík hjá henni Wink

Hlöðver Smári er alltaf jafn duglegur á gítarnum, hann pikkar upp lög eins og ekkert sé! Algjör snillingur Laughing

Kristrún Inga er í fyrsta bekk og finnst voða gaman. Hún er líka í barnakór Auðarskóla og um daginn fóru þau á Hólmavík að keppa í Nótunni - tónlistarkeppni, og kórinn fékk sérstaka viðurkenningu! Smile

Jónas Vilberg er alla daga í leikskólanum, til klukkan eitt. Hann er orðinn svolítill grallari, duglegur að klifra og hreyfa sig Wink

Svo að ég hafi nú alla með, þá er gaman að segja frá því að í dag eru 15 ár síðan Óskar Ingi vígðist sem prestur! Laughing Svona líður nú tíminn....


Eigið góðan dag kæru vinir!


SumarfríGuðrún Kristinsdóttir

Við erum í sumarfríi núna, og erum búin að vera það í u.þ.b. 2 vikur. Við erum búin að vera á svolitlum þvælingi á milli Reykjavíkur og Búðardals í fríinu.
En frá því ég skrifaði síðasta blogg, þá er Hlöðver Smári búinn að eiga afmæli - 11 ára er hann orðinn drengurinn! Og Erla Dögg er orðin 19 ára!!!!!
Ótrúlegt alveg, en hins vegar er ég líka búin að eiga afmæli og eitthvað held ég að hafi misfarist í talningunni, því hún sýnir 40 árin.........Tongue out.

Erla Dögg lenti í árekstri þann 10. júní, hún og hinir sluppu sem betur fer vel, en bíllinn hennar er ónýtur. Það var ekki hægt að laga hann og hún náði að losa sig við hann til niðurrifs........ leiðinlegt með bílinn, en hann er þó bara dauður hlutur og hægt að bæta - við erum bara þakklát fyrir að enginn slasaðist.

Árlega grill Kárastaðafjölskyldunnar fór fram 14. júni, heima hjá Einari frænda. Það var að venju gaman að koma þangað - hefði þó viljað hafa betra veður.........

Ég fór á ættarmót á Úlfljótsvatni síðasta laugardag, það var mjög gaman að fara þangað - hefði þó viljað sjá mikið betri mætingu, og viðveru á staðnum. En, þetta var gaman, og eiginlega bara æfing - það verður aftur ættarmót eftir tvö ár, og þá mæta fleiri! Laughing
Ég komst því miður bara með mín þrjú yngstu, Óskar Ingi komst ekki, og ekki stóru krakkarnir. Þau verða vonandi með næst.

Við komum heim í gærkvöldi úr Mosfellsbænum, og nú er Hlöðver Smári úti að slá garðinn, og ég ætla að fara og reyta illgresi þegar ég er búin með þetta blogg.

Veðrið er búið að vera dásamlegt undanfarna daga, kartöflugrasið er komið upp í kartöflugarðinum, gulræturnar og salatið líka að koma upp Smile.

Við verðum frekar mikið heima í sumar, og endilega kíkið til okkar ef þið eigið leið hér um - eða bara gerið ykkur ferð! Wink

Eigið gott sumar kæru vinir!

Jónas Vilberg 4ra ára!Guðrún Kristinsdóttir

Þá eru komin fjögur ár síðan prinsinn fyrst leit dagsins ljós! Ótrúlegt hvað þetta er fljótt að líða.

Í dag eigum við von á fullt af gestum, fyrir hádegi koma leikskólakrakkarnir í afmæli til Jónasar og eftir hádegi höldum við uppá hans og Hlöðvers afmæli. Hlöðver Smári á afmæli á fimmtudaginn, 28. maí og þess vegna höldum við bara upp á afmælin saman.

Því miður er ekki sama blíðan og er búin að vera undanfarið, nú er farið að rigna...... en það er allt í lagi, þá bara verða allir inni og skemmta sér vel!

Vonandi verður dagurinn skemmtilegur hjá okkur og ykkur Laughing

Aftur blogg og nýbúin!Guðrún Kristinsdóttir

Sko, byrja vel Wink

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ JÓNATAN JÓPIE!!! Jónatan á afmæli í dag, vonandi sjáum við hann sem fyrst til að knúsa hann til hamingju Kiss

Þetta með afmælið mitt er enn að veltast um í kollinum mínum. Nú er ég búin að fatta að 27. júní gengur líklega ekki upp..... við ætluðum ekkert að vera heima þá! Sumarfrí sjáið þið til Tongue out

Þá er það 13. júní, en þá veit ég um eina manneskju sem kemst ekki þar sem henni datt í hug að plana ættarmót þá! Og ég vil endilega að hún komi..... en kannski 12. gangi bara upp? Já, veit að það er föstudagur, en er það ekki bara í lagi? Þeir sem vilja geta þá tjaldað, gist í bændagistingu, sumarbústað eða gistiheimilinu (ég hef því miður ekki pláss fyrir marga), og fólk getur þá gert eitthvað skemmtilegt á laugardeginum, farið í sund, á Eiríksstaði eða eitthvað annað skemmtilegt?!

Hugmyndin um að fólk borgi saman í rútuferð úr bænum er hreint ekki svo galin Linda! Ég kann ekkert á svona.......

Ég hugsa þetta aðeins lengur, en það styttist í niðurstöðu.

Hér var bongóblíða frá miðvikudegi og fram að helgi. 17 - 19 stiga hiti, sól og smá gola, bara yndislegt! Við fórum svo suður á föstudaginn, úr þvílíku blíðunni að maður tímdi varla að fara, Hlöðver Smári hafði meira að segja orð á þvi.
Við brunuðum suður en þar var ekki jafn gott veður, en það var í lagi því við hittum svo skemmtilegt fólk að það bætti það allt saman upp! Samt var veðrið mjög gott, en betra var það á laugardeginum. Á föstudagskvöldið fór ég, Kristrún Inga, Jónas Vilberg, mamma, Margrét systir og Kristrófer Andri á KFC að borða því Erla Dögg og Alexandra voru að vinna. Eftir vinnu kom Erla Dögg svo heim til mömmu og heimsótti okkur Laughing
Á laugardeginum fór ég með litlu krakkana til Önnu vinkonu og þar fengum við hádegismat. Krakkarnir léku við Óla og svo fórum við anna (og mín 2) í Rúmfatalagerinn, Elkó og Europris. Útréttuðum og keyptum bráðnauðsynlegar vörur Tongue out
Eftir að ég skilaði Önnu aftur heim, þá fór ég með krakkana að heimsækja ömmu. Það var auðvitað gaman að hitta hana, verst að hún var hálf lasin, en engu að síður var gaman að spjalla við hana Kiss
Um kvöldið horfði ég með öðru auganu á Eurovision með mömmu og pabba og á sunnudagsmorguninn fór ég til Margrétar systur og setti fasta fléttu í Guðrúnu Erlu, hún var að fara að keppa síðasta leikinn á Reykjavíkurmótinu í fótbolta. Ég, Óskar Ingi, mamma, Kristrún Inga og Jónas Vilberg fórum svo og horfðum á leikin og Guðrún Erla var hvött gríðarlega áfram með hrópum frá Kristrúnu og Jónasi. Leikurinn fór 2-2 og þær voru að keppa við A-liðið. Glæsilegt hjá þeim!

Hlöðver kom svo til mömmu og pabba og fór samferða okkur heim, en hann hafði verið hjá Oddi frá föstudeginum. Við drifum okkur heim úr blíðunni til að njóta blíðunnar heima, ég ætlaði að grilla læri og njóta góða veðursins. Úff, það var ekki alveg eins og ég ætlaði, hér var bara kuldi, 7 stiga hiti og hífandi rok Frown
En, samt ákvað ég að gera bara það sem ég var búin að ákveða og grillaði lærið! Mmmmm hvað það var gott! Vonandi verður gott grillsumar Wink


Sumarfrí!!Guðrún Kristinsdóttir

Þá er löng og strembin törn á enda! Ég er búin með skólann í bili og er komin í sumarfrí Laughing.

Þessi önn var eiginlega bara frekar leiðinleg, svona seinni parturinn af henni allavega. Mörg námskeiðin voru frekar illa skipulögð og maður var ekki viss um hverju átti að skila, og hvenær. Í lok annarinnar var alveg svakalega mikið um verkefnaskil og ferilmöppuskil..... úff, en gott að það er búið.

Ég er voða mikið að velta fyrir mér þessa dagana hvað ég á að gera í sambandi við afmælið mitt. Mig langar mjög mikið til að halda upp á það, en veit samt ekki hvað ég geri. Ef ég held upp á það, þá gengur það líklega ekki fyrr an 27. júní. Ég bara er samt frekar óviss, finnst þetta eitthvað svo mikið vesen og ég kann ekkert að halda svona veislur, og margir kæmu úr Reykjavík og ég hef ekki gistingu fyrir alla...... en auðvitað er nóg af tjaldstæðum og gistimöguleikum, en ég barasta get ekki haft gistingu í mínu boði og þá er þetta kannski orðið dýrt fyrir fólk að koma.... æi, þetta kemur bara í ljós.
Mér finnst líka spennandi að fá kannski bara pössun eina helgi fyrir krakkana og fara með eiginmanninum á hótel eitthvað, leikhús, út að borða og svoleiðis - en þetta er allavega allt að veltast um í kollinum á mér.

Kristrún er að klára leikskólann. Hún verður út maí og svo er hún farin í sumarfrí og byrjar svo í skólanum í haust. Það er nú bara alveg með ólíkindum hve tíminn líður hratt!!

Jónas verður 4ra ára eftir 10 daga, og Hlöðver 11 ára 5 dögum seinna. Erla Dögg svo 19 ára 4 dögum eftir það.... jebb, tíminn líður!

Ég reikna með að halda bara sameiginlegt fjölskylduafmæli fyrir strákana á afmælisdaginn hans Jónasar.

Sumarið er komið hér í Dalina. Veðrið er búið að vera alveg yndislegt í dag og gær, 16 - 17 stiga hit, sól að mestu og smá gola. Frábært þegar koma svona dagar!

Nú þykist ég ætla að verða duglegri hér, þar sem ég er komin í frí frá skólanum, eruð þið sem lesið til í að kvitta hér svo ég sjái hvort það er einhver sem hefur haldið áfram að kíkja.....

- Guðrún

Einn og hálfur mánður frá síðasta bloggi.....Guðrún Kristinsdóttir

Tíminn líður, tíminn bíður......

Já, veit að það er langt síðan síðast - en ég bara hef ekki gefið mér tíma í blogg.

Hér er allt bara gott að frétta, allir una sælir við sitt.

Hjá mér er brjálað að gera í skólanum núna, en ég held þó að þetta sé bara smá törn núna og það versta er afstaðið - og að núna fari hægt og rólega að róast smá. Þetta er líka spurning um að fá andann yfir sig á réttum tíma, þá getur þetta skot gengið.

Kristrún og Jónas eru í leikskólanum alla daga frá eitt til fimm og líkar vel. Þau eru alltaf kát með að fara í leikskólann og finnst mjög skemmtilegt. Þau eru á sömu deild og Kristrún útskrifast í sumar og þá held ég að Jónas Vilberg verði vængbrotinn í einhvern tíma, en held líka að hann hafi gott af því að hún fari í skólann og að hann þurfi að vera einn í leikskólanum með hinum krökkunum. Hún á það svolítið til að ákveða fyrir hann og reyna að stjórna Tongue out en það er þó ekki eins mikið hér heima - hér er hann farinn að svara fyrir sig og jafnvel farinn að ráðskast með hana!

Hlöðver er í skólanum og hann æfir gítar, badminton og glímu. Hann hefur nú alltaf nóg að gera. Á morgun er glímufélagið að fara í ferðalag og hann er svo spenntur! Það á að byrja á því að fara í Bláfjöll og svo verður farið í bíó og svo heim. Hann er alveg að farast úr spenningi Laughing.

Á öskudaginn lék Hlöðver sjálfan sig eftir 10 ár, Kristrún var prinsessa og Jónas M&M nammi. Ég skal sjá hvort ég nái að setja inn myndir á albúmið mitt á netinu, annars eru líka myndir á facebook.

Læt þetta duga, enda bara hellingur!

Kveðja,
Guðrún

Þá er skólinn byrjaðurGuðrún Kristinsdóttir

Þá er allt að komast í sama farið. Mamman á heimilinu upptekin allar stundir og börnin sæta færis að ná í hana.... hehe. Nei þetta er ekki alveg svo slæmt, en samt. Ég fæ stundum samviskubit yfir því að vera svona upptekin að læra, mér finnst ég sinna börnunum of lítið og gefa þeim of lítinn tíma - til hvers? Jú, til að læra að sinna annarra manna börnum og sinna þeim!! Hljómar hálf öfugsnúið sko! En, ég geri mitt besta að reyna að læra sem mest þessa fjóra tíma sem þau litlu eru í leikskólanum og láta heimilisstörfin þá vera. En stundum þarf samt að sinna öðru þá, eins og að skutla eða sækja stóra strákinn í íþróttir eða heimsóknir.

Héðan frá okkur er allt gott að frétta, en við bíðum alltaf spennt eftir að fá að vita eitthvað um bílinn sem Erla Dögg keypti sér í október. Hún semsagt keypti bíl þá en hann er búinn að vera bilaður siðan....... svo kom það í ljós þegar átti að fara að skipta um kúplingu í honum að gírkassinn var ónýtur  - en það ætti að vera annaðhvort tryggingamál hjá fyrrum eiganda og ef ekki, þá kostar þetta víst bara að ganga hart að fyrri eiganda því að þetta er víst klárlega leyndur galli því ekki er hægt að skoða status á olíu á gírkasa við venjulega skoðun fyrir kaup á bíl. En það er víst alveg greinilegt að gírkassinn er ónýtur vegna þess að hann hefur verið olíulaus LENGI og það er ekkert sem við gátum séð fyrir en í smurbók segir að hann hafi verið smurður fyrir 4000 km síðan og þá einnig ath. með oliu á gírkassanum..... bifvélavirkjar segja að hann á þá ekki að hafa verið olíulaus í langan tíma nema gírkassinn leki verulega mikið og þá á fyrrum eigandi að hafa orðið var við það. En ef gírkassinn lekur ekki, þá hafa örugglega orðið mistök í smurningunni og gleymst að ath. með olíuna á gírkassanum og ef svo er þá er þetta tryggingamál. En bíllinn er nú búinn að bíða meðan þetta er í athugun í einn og hálfan mánuð og Erla Dögg bíllaus á meðan.... En þetta skýrist vonandi í þessari viku.

Annars er bara allt í rólegheitum hér og ég skelli einhverju meira spennandi hér inn bráðlega.

Eigið góðan dag kæru vinir!

hmmmGuðrún Kristinsdóttir

Mamma benti mér á það í gær hve langt væri síðan ég hefði bloggað Embarassed. Það hefur bara verið hjá mér eins og hjá öðrum að það hefur bara verið rosalega mikið að gera.

En ég ætla að reyna að telja eitthvað upp:

Ég kláraði prófin fljótlega í desember og síðasta einkunn kom í hús á miðnætti á sunnudag. Mér gekk mjög vel og var mikið létt eftir það.

Kristrún Inga fékk hlaupabólu þann 21 desember...... en var orðin góð á aðfangadag - nema að hún var með slatta af bólum ennþá en hætt að klæja og það sem fyglir hlaupabólunni.

Diddi kom heim 20 desember og var til 27 desember hjá okkur. Það var alveg frábært að fá hann heim, hann var ljúfur og yndislegur og allir glaðir að fá smá tíma með honum.

Erla Dögg kom á þorláksmessukvöld og fór á jóladagseftirmiðdag. Það var auðvitað frábært að fá hana líka, ljúfa og góða .

Á jóladag fór ég með öll börnin mín yfir í Stykkishólm í hangikjötsboðið árlega. Þar fengum við dýrindis hangiket og með því. Óskar Ingi komst að sjálfsögðu ekki með, hann var auðvitað að vinna. En við hin vorum öll og það er orðinn stór hópurinn.

Mamma og pabbi tóku Erlu Dögg og Hlöðver með sér suður.

Laugardaginn 3ja janúar komu fyrstu bólurnar á Jónas Vilberg. Þá var hlaupabólan mætt til hans. Þetta fannst mér afleit tímasetning þó að mig hafi lengi grunað að hann myndi byrja um áramótin. En það er nú svo, að það ræður enginn tímasetningunni og þarna byrjuðu bólur að dreifa sér um hann allan. Þær komu þó frekar hægt til að byrja með, en um það leyti sem ég var að fara suður til Reykjavíkur fór hann versnandi. Á sunnudagsnóttina tók Óskar Ingi hann fram um klukkan 2 til að ég gæti sofið eitthvað því ég þurfti að vakna klukkan hálf sex um morguninn til að bruna af stað til Reykjavíkur í staðlotu. Æi, elsku kallinn, nú komu bólur og bólur og bólur. Hann varð allur undirlagður, tók þetta mikið verr en Kristrún Inga. Hann var sárlasinn með þessu og veinaði bara þegar Kalmínið var borið á hann. Við vitum það núna, en vissum ekki þá, að í sumum tilvikum þá getur sviðið undan því og það er það sem gerðist með Jónas. Á þriðjudagskvöldið var hann svo slæmur að það var hringt í lækni sem kom heim og skoðaði hann. Læknirinn gaf honum verkjastillandi í fljótandi formi og ofnæmislyf við kláðanum. Jónas er bara búinn að vera verulega lasinn, en þessi lyf frá lækninum hafa slegið á þetta og núna er hann ekki orðinn góður, en þó betri. Allt á uppleið, en mikið hefur verið erfitt að vera hér í bænum og geta ekkert gert og hann svona lasinn fyrir vestan.......

Á mánudaginn byrjaði ég semsagt í staðlotu í skólanum. Á þessari önn er ég í 4 námskeiðum: Listir og barnamenning, Félagsfræði og skólasaga, Upplýsingatækni og miðlun, Aðferðafræði og menntarannsóknir. Takk fyrir takk!

Mér líst vel á sumt, en mun verr á annað. En þetta er eitthvað sem verður að ljúka af og það er bara eins gott að vera jákvæður og takast á við þetta allt saman.

En, nú hef ég ekki tíma í meira blogg í bili, bið að heilsa ykkur ÖLLUM sem lesið Wink

Guðrún


Saumaklúbbur og leikhúsGuðrún Kristinsdóttir

Ég var með saumaklúbb í gærkvöldi. Hingað komu 7 skvísur og við sátum hér og höfðum gaman. Ég er nýbúin að fá æðislega uppskriftabók, sem gefin er út af starfsmannafélagi leikskólans í Stykkishólmi, og ég notaðist bara við uppskriftir úr þeirri bók. Þetta heppnaðist svona glimrandi vel. Ég var með einn heitan hrísgrjóna - rækjurétt einhvern, einn kaldan brauðrétt og tvær kökur. Síðan var ég með piparkökur, ritz kex og osta. Hér var glatt á hjalla og mikið borðað og spjallað. Við sátum til klukkan korter yfir þrjú í nótt Tongue out. Við erum oft svona lengi, ég er farin að hallast að þvi að við hittumst bara allt of sjaldan, við erum svona afskaplega skemmtilegar og því erum við alltaf svona lengi. Þetta var rosa skemmtilegt kvöld og ég er strax farin að hlakka til næsta klúbbs sem verður eftir u.þ.b. mánuð.

Ég ætla(ði) að fara í Stykkishólm í kvöld og sjá Jesus Christ Superstar, sem leikfélagið þar er að sýna. Villi frændi leikur Pontíus Pílatus og mig langar mikið til að sjá það. Veðrið er ekkert spes núna, veðurspáin er mjög slæm og útlitið ekki gott. Kannski kemst ég ekki Frown. En kannski bara hættir veðrið við og ekkert verður úr þessu snarvitlausa veðri sem er spáð í kvöld! Ég held allavega enn í vonina......... þrátt fyrir að sjá að það er byrjað að snjóa og bæta í vind......

Jæja, mér er ekki til setunnar boðið, hér er þörf á að vinna upp allt það sem setið hefur á hakanum síðustu vikur vegna verkefnaskila og svo prófa.

Hafið það gott í dag,

Guðrún

Komin í jólafrí!Guðrún Kristinsdóttir

Prófin eru búin og ég er komin í frí í skólanum!... Nánar

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Uppskriftir

Fleiri uppskriftir

Atburðarteljari

Teljari....






sjáið hverjir koma hingað..