Upplestrarfrí!
29. apríl 2008 klukkan 11:22
Jamm ætla bara að láta ykkur dyggu lesendur mínir (vona að það séu einhverjir
) ég ætla bara að láta ykkur vita að þar sem ég hef rolast allt of mikið í lærdómnum í vetur þá barasta verð ég að lesa og lesa og lesa og lesa núna ef ég ætla að eiga einhvern séns á að ná prófunum - þannig að ég er komin í bloggfrí þar til eftir próf........ ja, nema ég nenni alls ekki að lesa eins og núna og stelist hingað...... 
Hafið það gott og nú vonum við að sumarið fari að koma!
Guðrún

Systrahelgi
21. apríl 2008 klukkan 15:35
Ég fór suður á föstudaginn, skilaði af mér strákunum í Grafarvoginn, sótti þar Erlu Dögg og keyrði svo til Margrétar systur til að sækja æfingaaksturs skiltið sem hún var búin að ná í fyrir okkur. Skiltið var sett á bílinn og svo settist Erla Dögg undir stýri og ég í farþegasætið og hún keyrði í vinnuna. Það gekk bara nokkuð vel, auðvitað þarf að æfa ýmislegt - til þess er æfingaaksturinn auðvitað - en í vinnuna komst hún og svo fór ég og sótti bílinn hennar og þaðan niður í Kringlu til að sækja hana í vinnuna. Hún keyrði til baka og það gekk líka bara vel. Hún borðaði með okkur Möggu hamborgara að hætti Margrétar - nammi, namm - og svo var hún með okkur til klukkan hálf ellefu en þá fór ég með henni og hún keyrði bílinn upp í Vesturberg þar sem hún fór í heimsókn, ég keyrði bílinn hennar svo heim til hennar og skildi hann þar eftir og sótti minn. Við Margrét vorum svo bara í algjöru nammisukki fram eftir nóttu.....
Á laugardaginn fórum við Margrét til ömmu í heimsókn. Við fórum með Kristrúnu, Jónas, Kristófer Andra og Daníel Snæ. Þar var gaman eins og við var að búast. Amma gaf krökkunum pening sem var notaður í að kaupa ís fyrir þau og restin notuð í leikhúsinu á sunnudaginn.
Eftir heimsóknina til ömmu fórum við bara uppí Mosó og hjálpuðumst að við að grilla læri. Pabbi var ekki heima - hann var í einhverri vinnuferð. Lærið var bragðgott - gekk svosem á ýmsu við að grilla það, en NÚ kunnum við að grilla læri hehehe - en bragðið var sko gott og allt sem með því var. Erla Dögg kom líka og borðaði með okkur.
Síðan fórum við heim til Möggu og vorum í áframhaldandi nammisukki þar
Á sunnudaginn var síðan komið að leikhúsferðinni. Allir fóru í fínu fötin sín og við drifum okkur í Þjóðleikhúsið og sáum þar Skilaboðaskjóðuna. Það er alltaf gaman að koma í leikhús. Sýningin fór svona misjafnlega í okkur en í heildina var gaman, mikil stemmning og krakkarnir skemmtu sér hið besta.
Eftir leiksýningu fórum við í kaffiboð til mömmu og pabba, síðan fór ég til Margrétar, borðaði kvöldmat og sótti dótið okkar - fórum og sóttum Didda og brunuðum sem leið lá heim á leið.
Frábær helgi að baki - takk fyrir mig Margrét og sjáumst aftur á fimmtudaginn!

Vorið er komið..
15. apríl 2008 klukkan 10:26
Og grundirnar gróa...trallalalallalalallalala....
Ég klippti aðeins til rósirnar í garðinum í gær
held samt að ég þurfi að klippa aðeins meira en tímdi því ekki í gær - geri það kannski í dag. Það voru barasta komnir knúbbar á rósastilkana! Krókusarinir auðvitað löngu sprungnir út hjá mér og páskaliljurnar og túlipanarnir eru aaaaalveg að springa út! Yndislsegt.
Ég er að spá í að fara út á eftir og sópa og snyrta aðeins til og er meira að segja að spá í að sækja garðhúsgögnin og stilla þeim bara upp! Ég hef fulla trú á því að nú sé vorið komið fyrir fullt og allt! LOKSINS!
Allt við það sama hér annars, Jónas Vilberg og Kristrún Inga dugleg að halda mér við efnið. Í gær sat ég hér við tölvuna að læra og krakkarnir bara góðir að leika sér. Síðan kom Kristrún og spurði hvort þau mættu gefa salamöndrunni að borða. Ég fór fram og náði í sitthvorn stautinn (ca 1/2 cm langur matur) og sagði þeim að þau mættu gefa henni sitt hvorn. Ég fór svo inn og þau að gefa salamöndrunni. Svo héldu þau bara áfram að leika - eða það hélt ég allavegana......... þar til Kristrún kom til mín og sagði að Jónas Vilberg væri að gera eitthvað sem hann mætti ekki. Ég rauk fram og þá beið mín EKKI skemmtileg sjón! Hann var búinn að ná í báðar tegundirnar af matnum fyrir salamöndruna og búinn að skella ca hálfum dunk af fíngerðum kornamat út í búirð hjá salamöndrunni og helling líka í rauða sófann........... ég byrjaði á því að ryksuga allt og ná í dósina og setja lokið á - svo þegar ég var búin að ryksuga allan sófann og stofuna byrjaði ég á salamöndrubúrinu. Ég þurfti að sækja slöngu og „ryksuga“botninn á búrinu og skipta um vatn. Hann hafði semsagt sett helling af kornunum útí og líka nokkra stauta (hugsanlega hefur systir hans hjálpað honum). Þegar ég var búin að fara 2 umferðir í búrinu og skipta 2svar um helling af vatni - og vona bara að salamöndrunni verði ekki meint af - snéri ég mér við og viti menn! Jónas hafði náð í dósina aftur, skrúfað lokið af og hvolft næstum öllu úr! Aftur varð sófinn fyrir þessu auk þess sem slatti fór í teppi sem var í sófanum og svo dreifðist þarna í kring! Ég var að ryksuga sófann aftur, taka hann í sundur(þetta er svefnsófinn) og ryksuga allt þarna í kring. Úff já hann lætur mig sko ekki gleyma sér
.
Já það minnir mig á það, eins gott að gleyma sér ekki hér og fara að ath. hvað þau systkinin eru að gera !
Eigið góðan dag,
Guðrún
Ég klippti aðeins til rósirnar í garðinum í gær
held samt að ég þurfi að klippa aðeins meira en tímdi því ekki í gær - geri það kannski í dag. Það voru barasta komnir knúbbar á rósastilkana! Krókusarinir auðvitað löngu sprungnir út hjá mér og páskaliljurnar og túlipanarnir eru aaaaalveg að springa út! Yndislsegt.Ég er að spá í að fara út á eftir og sópa og snyrta aðeins til og er meira að segja að spá í að sækja garðhúsgögnin og stilla þeim bara upp! Ég hef fulla trú á því að nú sé vorið komið fyrir fullt og allt! LOKSINS!
Allt við það sama hér annars, Jónas Vilberg og Kristrún Inga dugleg að halda mér við efnið. Í gær sat ég hér við tölvuna að læra og krakkarnir bara góðir að leika sér. Síðan kom Kristrún og spurði hvort þau mættu gefa salamöndrunni að borða. Ég fór fram og náði í sitthvorn stautinn (ca 1/2 cm langur matur) og sagði þeim að þau mættu gefa henni sitt hvorn. Ég fór svo inn og þau að gefa salamöndrunni. Svo héldu þau bara áfram að leika - eða það hélt ég allavegana......... þar til Kristrún kom til mín og sagði að Jónas Vilberg væri að gera eitthvað sem hann mætti ekki. Ég rauk fram og þá beið mín EKKI skemmtileg sjón! Hann var búinn að ná í báðar tegundirnar af matnum fyrir salamöndruna og búinn að skella ca hálfum dunk af fíngerðum kornamat út í búirð hjá salamöndrunni og helling líka í rauða sófann........... ég byrjaði á því að ryksuga allt og ná í dósina og setja lokið á - svo þegar ég var búin að ryksuga allan sófann og stofuna byrjaði ég á salamöndrubúrinu. Ég þurfti að sækja slöngu og „ryksuga“botninn á búrinu og skipta um vatn. Hann hafði semsagt sett helling af kornunum útí og líka nokkra stauta (hugsanlega hefur systir hans hjálpað honum). Þegar ég var búin að fara 2 umferðir í búrinu og skipta 2svar um helling af vatni - og vona bara að salamöndrunni verði ekki meint af - snéri ég mér við og viti menn! Jónas hafði náð í dósina aftur, skrúfað lokið af og hvolft næstum öllu úr! Aftur varð sófinn fyrir þessu auk þess sem slatti fór í teppi sem var í sófanum og svo dreifðist þarna í kring! Ég var að ryksuga sófann aftur, taka hann í sundur(þetta er svefnsófinn) og ryksuga allt þarna í kring. Úff já hann lætur mig sko ekki gleyma sér
. Já það minnir mig á það, eins gott að gleyma sér ekki hér og fara að ath. hvað þau systkinin eru að gera !
Eigið góðan dag,
Guðrún
Internetið getur verið frábært!
13. apríl 2008 klukkan 12:45
Já Netið getur gert ótrúlegustu hluti! Fyrir ca. viku þá var ég á Facebook (síða á netinu) og þá er verið að tala á forsíðunni um grúbbur sem fólk á facebook væri í. Þ.á. m. var ein grúbba háskóli í Chicago - þar sem ég á slatta af frændfólki en er í litlu sambandi við sumt af þeim og engu við önnur. Mér datt í hug að nota leitarvélina þarna og leita af einhverju af þessu fólki og byrja á því að setja inn nafn á syni Kevins frænda. En ekkert fannst. Þá ákvað ég fyrst ég var byrjuð að leita og vissi auðvitað ekkert í hvaða skóla hann væri að leita í almennu leitinni en ekki í þessum ákveðna skóla og viti menn! Á fyrstu síðu finn ég Colin Eirík og þekkti hann strax á myndinni þrátt fyrir að hann hafi örugglega ekki verið orðinn 10 ára þegar ég sá hann síðast! Ég sendi honum skilaboð og í framhaldi af því er ég komin í samband við hann, Brian föðurbróður hans og 2 börn hans. Frábært alveg og þau virðast líka vera mjög hrifin! Þetta er frábært að vera komin í samband við þau og nú notum við tölvupóstinn til að spjalla saman - frábært að endurvekja svona kynni.
Við vorum á tónleikum í gærkvöldi. Þetta voru styrktartónleikar fyrir Þórð og Önnu á Breiða. Þórður veiktist síðasta sumar og er allur að koma til en á samt svolítið í land enn og það eru erfiðir tímar hjá þeim núna og framundan. Mætingin var hreint út sagt frábær - Dalabúð troðfull! Tónleikarnir voru frábærir. Ég er mikið fyrir svona tónleika en þetta voru 2 karlakórar og einn blandaður kór. Söngurinn var yndislegur og hreif mann með sér. Ég hef t.d. held ég aldrei séð O happy day sunginn með svona mikilli gleðilegri innlifun og þarna var! Alveg stórkoslegt! Einn karla einsöngvari og karlakór! Geggjað!!!
Hreif mig að minnsta kosti algjörlega!
Hér er sól og blíða, ekkert rosa hlýtt reyndar en samt fyrir ofan frostmark og ég hengdi meira að segja smá þvott út á snúru áðan! Frétti hjá Margréti systur að það bara snjóar og snjóar hjá henni! Henni væri nær að koma bara hingað í vorið
.
Kveðja úr vorinu í Dölunum,

.Kveðja úr vorinu í Dölunum,
Guðrún
Ég er pabba strumpurinn
07. apríl 2008 klukkan 14:12
en þú?
Taktu prófið: http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm

Taktu prófið: http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm

OK OK OK OK
04. apríl 2008 klukkan 10:28
Já ég veit það ! Ég er lélegur bloggari! SKAMM Guðrún !
OK þá er það frá - er það ekki?
En allavega þá fórum við suður síðustu helgi og fengum íbúðina hjá Möggu og Yngva lánaða. Rosa gott að geta verið svona bara með heila íbúði fyrir sig......
. Þau voru nefninlega í hjólhýsinu sínu um helgina. Takk fyrir lánið á íbúðinni !
Á laugardeginum komu þau reyndar í kaffi heim til sín hehhehe því Guðrún Erla var að keppa í fótbolta á ÍR vellinum - og ég skal bara segja ykkur það að hún frænka mín skoraði eina markið sem var skorað fyrir ÍR !!!!! JÁ hún er í ÍR! hehehe
Seinni part laugardagsins fórum við bílasölurúnt og þar fannst bíll - keyptur var Galant fyrir karlinn þannig að nú ættu bílamál okkar að komast á betra ról.
Á sunnudaginn fórum við í fermingarveislu til Arnar Inga og þar var rosa gaman að koma - hittum marga sem við höfum ekki hitt í möööörg ár....... Takk fyrir okkur !
Eftir veisluna keyrðum við heim - og ég fékk að keyra í sköflum á brekkunni
Vikan er búin að ganga sinn vanagang - fór í heita pottinn á Fjósum í vikunni ahhh rosa gott.
Skarphéðinn gisti hjá Hlöðveri á miðvikudagsnóttina og fór með honum í skólann í gær - þeir voru rosa góðir saman og í nótt fékk svo Helena að gista hjá litlu krökkunum - svaka fjör.
Í morgun fór Hlöðver Smári til tannlæknis - það átti að gera við eina tönn - og hann er svo rosalega duglegur að hann fór einn!!! Hann vildi það endilega og hlakkaði til!! Tannlæknirinn hér er náttúrulega bara frábær - ég hlakka til að heyra í Hlöðveri og frétta hvernig gekk. Hann fór bara beint í skólann eftir tannlæknatímann.
Strákarnir fara svo suður um helgina - ég hugsa að ég keyri þá bara og skreppi allavega í Bónus á leiðinni......
En eigið góða helgi kæru vinir!
-Guðrún
OK þá er það frá - er það ekki?
En allavega þá fórum við suður síðustu helgi og fengum íbúðina hjá Möggu og Yngva lánaða. Rosa gott að geta verið svona bara með heila íbúði fyrir sig......
. Þau voru nefninlega í hjólhýsinu sínu um helgina. Takk fyrir lánið á íbúðinni !Á laugardeginum komu þau reyndar í kaffi heim til sín hehhehe því Guðrún Erla var að keppa í fótbolta á ÍR vellinum - og ég skal bara segja ykkur það að hún frænka mín skoraði eina markið sem var skorað fyrir ÍR !!!!! JÁ hún er í ÍR! hehehe
Seinni part laugardagsins fórum við bílasölurúnt og þar fannst bíll - keyptur var Galant fyrir karlinn þannig að nú ættu bílamál okkar að komast á betra ról.
Á sunnudaginn fórum við í fermingarveislu til Arnar Inga og þar var rosa gaman að koma - hittum marga sem við höfum ekki hitt í möööörg ár....... Takk fyrir okkur !
Eftir veisluna keyrðum við heim - og ég fékk að keyra í sköflum á brekkunni

Vikan er búin að ganga sinn vanagang - fór í heita pottinn á Fjósum í vikunni ahhh rosa gott.
Skarphéðinn gisti hjá Hlöðveri á miðvikudagsnóttina og fór með honum í skólann í gær - þeir voru rosa góðir saman og í nótt fékk svo Helena að gista hjá litlu krökkunum - svaka fjör.
Í morgun fór Hlöðver Smári til tannlæknis - það átti að gera við eina tönn - og hann er svo rosalega duglegur að hann fór einn!!! Hann vildi það endilega og hlakkaði til!! Tannlæknirinn hér er náttúrulega bara frábær - ég hlakka til að heyra í Hlöðveri og frétta hvernig gekk. Hann fór bara beint í skólann eftir tannlæknatímann.
Strákarnir fara svo suður um helgina - ég hugsa að ég keyri þá bara og skreppi allavega í Bónus á leiðinni......
En eigið góða helgi kæru vinir!
-Guðrún
Enn hækkar allt......
25. mars 2008 klukkan 12:17
Páskafríið búið en páskarnir ekki
. Ég hringdi á skrifstofu Smyril - line á miðvikudaginn því við ákváðum bara að borga alla ferðina því eins og ég sagði frá í síðustu viku þá hækkaði ferðin um slatta þegar ég borgaði staðfestingagjaldið og við vorum bara hrædd um að ferðin myndi hækka meira. Ég hringdi og sagði henni þetta - hún hikaði og sagði svo að fyrst þetta væri svona þá myndi hún reyna að seppa mér núna....... þeir voru semsagt að hækka meira en ég slapp með fyrri hækkunina - ferðirnar hjá þeim hafa víst hækkað samtals um 22%.
Við erum búin að hafa það fínt um páskana hingað til - mikið að gera hjá manninum mínum auðvitað en við erum samt búin að hafa það fínt. Ég fór suður með Didda og Hlöðver á mánudaginn og skrapp svo aðeins í mosó til tengdó í smá heimsókn og hitti þar líka Önnu Björgu smá og Jakob og Júlíu, Fanney og Fjölni, Salómon og Davíð Pálma.
Á Skírdag komu Fanney og Fjölnir með Salómon Sandel og Davíð Pálma til okkar. Þau komu fyrst með okkur á Fellsenda í messu og svo fórum við heim. Þau gistu hér um nóttina - rosa gaman að hafa þau og við spjölluðum fram á nótt
. Takk fyrir komuna, það var gaman að hafa ykkur !
Fleiri gestir komu ekki - en í gær fór ég með Kristrúnu og Jónas suður og brunuðum við beint í Grafarvoginn og sóttum Erlu Dögg og Hlöðver Smára og við fórum í Bústaðakirkju þar sem skírn Sóleyjar Bærings fór fram. Sóley er yngsta dóttir Ástu og Steina. Á eftir var svakaleg veisla í Kíwanis húsinu í Kópavoginum.
Eftir þetta fór ég með krakkana til mömmu og pabba og tróðum við okkur í aðra veislu þar........ fengum lambalæri og alles.......
Kom heim um hálf ellefu í gærkvöldi eftir skemmtilegan dag.
Erna vinkona er að fara til Flórída á eftir - ohhh heppin hún, hún bað mig reyndar að koma með sér en það gekk ekki upp....... ég verð bara með henni í anda
og tölvusambandi
.
Góða ferð Erna og hafðu það gott í útlöndunum !
Læt þetta duga í bili héðan -
Guðrún
. Ég hringdi á skrifstofu Smyril - line á miðvikudaginn því við ákváðum bara að borga alla ferðina því eins og ég sagði frá í síðustu viku þá hækkaði ferðin um slatta þegar ég borgaði staðfestingagjaldið og við vorum bara hrædd um að ferðin myndi hækka meira. Ég hringdi og sagði henni þetta - hún hikaði og sagði svo að fyrst þetta væri svona þá myndi hún reyna að seppa mér núna....... þeir voru semsagt að hækka meira en ég slapp með fyrri hækkunina - ferðirnar hjá þeim hafa víst hækkað samtals um 22%.Við erum búin að hafa það fínt um páskana hingað til - mikið að gera hjá manninum mínum auðvitað en við erum samt búin að hafa það fínt. Ég fór suður með Didda og Hlöðver á mánudaginn og skrapp svo aðeins í mosó til tengdó í smá heimsókn og hitti þar líka Önnu Björgu smá og Jakob og Júlíu, Fanney og Fjölni, Salómon og Davíð Pálma.
Á Skírdag komu Fanney og Fjölnir með Salómon Sandel og Davíð Pálma til okkar. Þau komu fyrst með okkur á Fellsenda í messu og svo fórum við heim. Þau gistu hér um nóttina - rosa gaman að hafa þau og við spjölluðum fram á nótt
. Takk fyrir komuna, það var gaman að hafa ykkur !Fleiri gestir komu ekki - en í gær fór ég með Kristrúnu og Jónas suður og brunuðum við beint í Grafarvoginn og sóttum Erlu Dögg og Hlöðver Smára og við fórum í Bústaðakirkju þar sem skírn Sóleyjar Bærings fór fram. Sóley er yngsta dóttir Ástu og Steina. Á eftir var svakaleg veisla í Kíwanis húsinu í Kópavoginum.
Eftir þetta fór ég með krakkana til mömmu og pabba og tróðum við okkur í aðra veislu þar........ fengum lambalæri og alles.......
Kom heim um hálf ellefu í gærkvöldi eftir skemmtilegan dag.
Erna vinkona er að fara til Flórída á eftir - ohhh heppin hún, hún bað mig reyndar að koma með sér en það gekk ekki upp....... ég verð bara með henni í anda
og tölvusambandi
. Góða ferð Erna og hafðu það gott í útlöndunum !
Læt þetta duga í bili héðan -
Guðrún
Fyrirsögn já....
13. mars 2008 klukkan 13:50
Mér leiðist að þurfa alltaf að setja fyrirsögn á bloggið ! Ég er svo hugmyndasnauð að ég stoppa oft lengi við að finna út hvað ég á að skrifa þar
.
Allt í rólegheitum hér á bæ. Það styttist í páskafríið og páskana
. Strákarnir verða fyrir sunnan um páskana eins og vanalega, þeir eru alltaf þar um páska. Ég veit reyndar ekki alveg hvenær þeir fara en ég finn út úr því fljótlega. Þeir er misjafnt hvenær þeir hafa farið, stundum á miðvikudeginum, stundum á skírdag og alla vega einu sinni á föstudaginn langa. Svo koma þeir heim á annan í páskum.
Greta Rún kom að heimsækja Kristrúnu og Jónas á mánudaginn og það var sko skemmtilegt! Þeim finnst svo gaman að fá gesti til að leika við. Við sóttum hana bara í leikskólann um klukkan 3 og svo kom mamma hennar og Halldór bróðir hennar að sækja hana seinna. Þau stoppuðu svolítið og Halldór lék við þau áður en þau fóru heim - rosa gaman
.
Ég er loksins búin að panta far með Norrænu til Færeyja í sumar. Ég er samt hálf svekkt útí sjálfa mig því að við erum löngu búin að ákveða þetta og það er líka svolítið síðan dagsetningin komst á hreint - en ég var ekki viss um hvort að ég ætti að bóka eða hvort Óskar Ingi ætlaði að gera það....... en um helgina ákváðum við að ég myndi bara bóka (mér finnst svo gaman að kaupa ferðir og spá og spuglera) og ég fór í það um helgina. En þá er síðan hjá Norrænu ekki alveg nógu skýr - og ég ekki alveg með það á hreinu hvernig ég ætti að bóka - vantaði reiti fyrir 2 af fjölskyldunni þannig að ég var ekki alveg örugg um það hvernig ég átti að gera og ákvað bara að gera þetta eftir helgi og hringja bara til að fá upplýsingar um það hvar og hvernig ég átti að koma nöfnunum okkar öllum fyrir.
Ég hringi svo á þriðjudaginn til að fá þessar upplýsingar - já og það gekk bara vel - og ég kláraði að fylla út bókunina og sendi hana svo. Í gær fékk ég svo rukkunina, staðfestingu bókunnarinnar og reikninginn. Þá sé ég að verðið er 13.200 krónum dýrara en ég fékk uppggefið hjá þeim núna í febrúar. Ég ákvað að hringja til að fá skýringu á þessu því ég var með tölvupóst sem innihélt upplýsingar um akkúrat þessa ferð, hvað hún kostar á þessum tíma. Jú - það passaði ! Það hækkaði allt um 11% á mánudaginn!!! ARG þeir sem pöntuðu fyrir helgi sluppu á ódýrara verðinu - gengið hefur hækkað svo að allt hækkaði
En við hættum auðvitað ekkert við - 13 þúsund kall er ekkert svo svakalega mikið en samt........ kemst langt í áttina til Seyðisfjarðar fyrir það...........................
En það þýðir víst ekkert að tauta um það - allt er að hækka - er bara smá svekkt því ég hefði þannig lagað alveg getað bókað fyrir helgi - átti ekki von á að þetta myndi hækka án þess að það yrði auglýst og fannst að sú sem sendi mér svar við spurningum um verð á ferðinni í febrúar hefði alveg getað sent mér bréf og sagt mér að ef ég væri að spá í þessa ferð þá borgaði sig að bóka fyrir helgina því eftir helgina myndi allt hækka...........
En nú er ég búin að tuða og spái ekki í þetta meira, hlakka bara til sumarfríisins
.
Það verður rosa gaman, nýja Norræna er víst rosa flott, lúxushótel !
Hlöðver er voða duglegur að blogga og gaman að sjá hversu margir skoða síðuna hans og kvitta fyrir - honum finnst það rosa spennandi
.
Over and out,
Guðrún
.Allt í rólegheitum hér á bæ. Það styttist í páskafríið og páskana
. Strákarnir verða fyrir sunnan um páskana eins og vanalega, þeir eru alltaf þar um páska. Ég veit reyndar ekki alveg hvenær þeir fara en ég finn út úr því fljótlega. Þeir er misjafnt hvenær þeir hafa farið, stundum á miðvikudeginum, stundum á skírdag og alla vega einu sinni á föstudaginn langa. Svo koma þeir heim á annan í páskum.Greta Rún kom að heimsækja Kristrúnu og Jónas á mánudaginn og það var sko skemmtilegt! Þeim finnst svo gaman að fá gesti til að leika við. Við sóttum hana bara í leikskólann um klukkan 3 og svo kom mamma hennar og Halldór bróðir hennar að sækja hana seinna. Þau stoppuðu svolítið og Halldór lék við þau áður en þau fóru heim - rosa gaman
.Ég er loksins búin að panta far með Norrænu til Færeyja í sumar. Ég er samt hálf svekkt útí sjálfa mig því að við erum löngu búin að ákveða þetta og það er líka svolítið síðan dagsetningin komst á hreint - en ég var ekki viss um hvort að ég ætti að bóka eða hvort Óskar Ingi ætlaði að gera það....... en um helgina ákváðum við að ég myndi bara bóka (mér finnst svo gaman að kaupa ferðir og spá og spuglera) og ég fór í það um helgina. En þá er síðan hjá Norrænu ekki alveg nógu skýr - og ég ekki alveg með það á hreinu hvernig ég ætti að bóka - vantaði reiti fyrir 2 af fjölskyldunni þannig að ég var ekki alveg örugg um það hvernig ég átti að gera og ákvað bara að gera þetta eftir helgi og hringja bara til að fá upplýsingar um það hvar og hvernig ég átti að koma nöfnunum okkar öllum fyrir.
Ég hringi svo á þriðjudaginn til að fá þessar upplýsingar - já og það gekk bara vel - og ég kláraði að fylla út bókunina og sendi hana svo. Í gær fékk ég svo rukkunina, staðfestingu bókunnarinnar og reikninginn. Þá sé ég að verðið er 13.200 krónum dýrara en ég fékk uppggefið hjá þeim núna í febrúar. Ég ákvað að hringja til að fá skýringu á þessu því ég var með tölvupóst sem innihélt upplýsingar um akkúrat þessa ferð, hvað hún kostar á þessum tíma. Jú - það passaði ! Það hækkaði allt um 11% á mánudaginn!!! ARG þeir sem pöntuðu fyrir helgi sluppu á ódýrara verðinu - gengið hefur hækkað svo að allt hækkaði
En við hættum auðvitað ekkert við - 13 þúsund kall er ekkert svo svakalega mikið en samt........ kemst langt í áttina til Seyðisfjarðar fyrir það...........................En það þýðir víst ekkert að tauta um það - allt er að hækka - er bara smá svekkt því ég hefði þannig lagað alveg getað bókað fyrir helgi - átti ekki von á að þetta myndi hækka án þess að það yrði auglýst og fannst að sú sem sendi mér svar við spurningum um verð á ferðinni í febrúar hefði alveg getað sent mér bréf og sagt mér að ef ég væri að spá í þessa ferð þá borgaði sig að bóka fyrir helgina því eftir helgina myndi allt hækka...........
En nú er ég búin að tuða og spái ekki í þetta meira, hlakka bara til sumarfríisins
.Það verður rosa gaman, nýja Norræna er víst rosa flott, lúxushótel !
Hlöðver er voða duglegur að blogga og gaman að sjá hversu margir skoða síðuna hans og kvitta fyrir - honum finnst það rosa spennandi
.Over and out,
Guðrún
Helgin....
10. mars 2008 klukkan 10:54
Já, - eða kannski ætti ég frekar að segja vikan.....
Ég er bara alls ekki nógu dugleg að blogga ! Hér er bara allt við það sama, Kristrún Inga alveg hætt með snuð
en það gengur ekki alveg jafn vel hjá litla bróður hennar að segja til og pissa í klósettið........ en það kemur með hækkandi sól
.
Í gær fórum við í messu í Kvennabrekkukirkju og krakkarnir voru nú bara til friðs! Það er kannski að koma sá tími að ég get farið með þau með mér í messu án þess að sitja sveitt yfir þeim? Kristrún Inga var eitthvað að elta pabba sinn fyrir messu og skoða það sem hann var að hafa til og þar á meðal sá hún hökulinn sem hann ætlaði að nota í messunni. Hökullinn sem hann notar núna er fjólublár því það er fasta og hún skoðaði hann ásamt fleiru. Svo fer pabbi hennar á bæinn að hafa sig til en við biðum í kirkjunni. Svo kom fleira fólk í kirkjuna og þ.á. m. Þorgrímur. Kristrún fer að spjalla við hann og segir honum svo að pabbi hennar sé fjólublár!! Aumingja Þorgrímur hefur búist við að sjá hann marinn og bláan hehe en ég held nú samt að hann hafi áttað sig á þessu
. Okkur var svo eftir messu boðið í kaffi á Kvennabrekku sem við þáðum - mjög gaman og notarlegt, krakkarnir voru ekkert á því að fara heim þegar tími var kominn til þess.
En á föstudagskvöldið fórum við hjónin út að borða á Hótel Hamri með góðum félagsskap. Amma og afi (Hugrún og Jörundur) komu hingað og pössuðu litlu krakkana fyrir okkur á meðan til að við kæmumst. Ásdís bauð Hlöðveri að vera hjá sér. Við komum heim um klukkan eitt um nóttina og héldum svo áfram að kvabba á þessum góðu vinum á laugardeginum því að Hlöðver var enn í Bakkahvamminum og Kristrún og Jónas fóru að Fjósum aftur í pössun því okkur var boðið í brúðkaup og skírn. Óskar Ingi sá um athöfnina sem var afskaplega falleg, Íris og Herdís sáu um sönginn og var það alveg yndislegt ! Síðan var veisla í Dalabúð - frábær matur og kökur a la Freyja og ég kom ekki til að sækja börnin mín fyrr en um klukkan hálf níu á laugardagskvöldið.
Já, það er gott að eiga góða að ! Takk Hugrún, Jörundur og Ásdís
En það er víst best að koma sér að verki - já og ef þið vilduð vera svo væn þá yrði Hlöðver Smári örugglega ánægður ef þið mynduð kíkja á bloggsíðuna sem hann bjó sér til í gærkvöldi. Slóðin er hlodver.bloggar.is
Ég er bara alls ekki nógu dugleg að blogga ! Hér er bara allt við það sama, Kristrún Inga alveg hætt með snuð
en það gengur ekki alveg jafn vel hjá litla bróður hennar að segja til og pissa í klósettið........ en það kemur með hækkandi sól
.Í gær fórum við í messu í Kvennabrekkukirkju og krakkarnir voru nú bara til friðs! Það er kannski að koma sá tími að ég get farið með þau með mér í messu án þess að sitja sveitt yfir þeim? Kristrún Inga var eitthvað að elta pabba sinn fyrir messu og skoða það sem hann var að hafa til og þar á meðal sá hún hökulinn sem hann ætlaði að nota í messunni. Hökullinn sem hann notar núna er fjólublár því það er fasta og hún skoðaði hann ásamt fleiru. Svo fer pabbi hennar á bæinn að hafa sig til en við biðum í kirkjunni. Svo kom fleira fólk í kirkjuna og þ.á. m. Þorgrímur. Kristrún fer að spjalla við hann og segir honum svo að pabbi hennar sé fjólublár!! Aumingja Þorgrímur hefur búist við að sjá hann marinn og bláan hehe en ég held nú samt að hann hafi áttað sig á þessu
. Okkur var svo eftir messu boðið í kaffi á Kvennabrekku sem við þáðum - mjög gaman og notarlegt, krakkarnir voru ekkert á því að fara heim þegar tími var kominn til þess.En á föstudagskvöldið fórum við hjónin út að borða á Hótel Hamri með góðum félagsskap. Amma og afi (Hugrún og Jörundur) komu hingað og pössuðu litlu krakkana fyrir okkur á meðan til að við kæmumst. Ásdís bauð Hlöðveri að vera hjá sér. Við komum heim um klukkan eitt um nóttina og héldum svo áfram að kvabba á þessum góðu vinum á laugardeginum því að Hlöðver var enn í Bakkahvamminum og Kristrún og Jónas fóru að Fjósum aftur í pössun því okkur var boðið í brúðkaup og skírn. Óskar Ingi sá um athöfnina sem var afskaplega falleg, Íris og Herdís sáu um sönginn og var það alveg yndislegt ! Síðan var veisla í Dalabúð - frábær matur og kökur a la Freyja og ég kom ekki til að sækja börnin mín fyrr en um klukkan hálf níu á laugardagskvöldið.
Já, það er gott að eiga góða að ! Takk Hugrún, Jörundur og Ásdís

En það er víst best að koma sér að verki - já og ef þið vilduð vera svo væn þá yrði Hlöðver Smári örugglega ánægður ef þið mynduð kíkja á bloggsíðuna sem hann bjó sér til í gærkvöldi. Slóðin er hlodver.bloggar.is
Duglega ég ;-)
01. mars 2008 klukkan 13:01
Já mér finnst ég bara dugleg, var að koma heim úr badminton - það er alltaf jafn gaman þar. Ég gleymdi að mæta á miðvikudaginn............úff já ég skil bara ekki hvernig ég gat gleymt því
En allar líkur benda til þess að Margrét systir verði hjá mér næsta miðvikudag - og þá kemur hún með mér á mömmumorgun um morguninn og vonandi í badminton um kvöldið
.
Á fimmtudaginn var árshátíð grunnskólans og ég verð bara að segja að þetta var bara ein skemmtilegasta og best heppnaðasta árshátíðin sem ég hef farið á hér !
Skemmtiatriðin hnyttin og hnitmiðuð - ekki langdregin eins og oft vill verða- og auðvitað stóðu Diddi og Hlöðver Smári sig rosalega vel ! Það er eitthvað leikaragen í þeim.......
Já það minnir á það að Erla Dögg er í London eins og ég sagði frá í síðustu færslu, hún er enn slöpp og með hálsbólgu - en hún tekur bara panodil af og til - og hún er að upplifa alveg frábæra hluti. Leiksýningarnar frábærar og leiklistaskólinn sem hún heimsótti varð ekki til að lækna leikarabakteríuna sem hún hefur haft frá því hún var mjög lítil
skilst að henni dauðlangi í skólann en fannst hann jafnframst óyfirstíganlega dýr...............árið kostar víst eina og hálfa milljón
.
Hún kemur svo heim á mánudaginn og ég hlakka mikið til að heyra ferðasöguna og vona bara að hún sé dugleg að taka myndir
.
Hafið það gott í þessu yndislega veðri í dag kæru vinir og verið góð við hvert annað
En allar líkur benda til þess að Margrét systir verði hjá mér næsta miðvikudag - og þá kemur hún með mér á mömmumorgun um morguninn og vonandi í badminton um kvöldið
.Á fimmtudaginn var árshátíð grunnskólans og ég verð bara að segja að þetta var bara ein skemmtilegasta og best heppnaðasta árshátíðin sem ég hef farið á hér !
Skemmtiatriðin hnyttin og hnitmiðuð - ekki langdregin eins og oft vill verða- og auðvitað stóðu Diddi og Hlöðver Smári sig rosalega vel ! Það er eitthvað leikaragen í þeim.......
Já það minnir á það að Erla Dögg er í London eins og ég sagði frá í síðustu færslu, hún er enn slöpp og með hálsbólgu - en hún tekur bara panodil af og til - og hún er að upplifa alveg frábæra hluti. Leiksýningarnar frábærar og leiklistaskólinn sem hún heimsótti varð ekki til að lækna leikarabakteríuna sem hún hefur haft frá því hún var mjög lítil
skilst að henni dauðlangi í skólann en fannst hann jafnframst óyfirstíganlega dýr...............árið kostar víst eina og hálfa milljón
. Hún kemur svo heim á mánudaginn og ég hlakka mikið til að heyra ferðasöguna og vona bara að hún sé dugleg að taka myndir
.Hafið það gott í þessu yndislega veðri í dag kæru vinir og verið góð við hvert annað