Duglega ég ;-)
01. mars 2008 klukkan 13:01
Já mér finnst ég bara dugleg, var að koma heim úr badminton - það er alltaf jafn gaman þar. Ég gleymdi að mæta á miðvikudaginn............úff já ég skil bara ekki hvernig ég gat gleymt því
En allar líkur benda til þess að Margrét systir verði hjá mér næsta miðvikudag - og þá kemur hún með mér á mömmumorgun um morguninn og vonandi í badminton um kvöldið
.
Á fimmtudaginn var árshátíð grunnskólans og ég verð bara að segja að þetta var bara ein skemmtilegasta og best heppnaðasta árshátíðin sem ég hef farið á hér !
Skemmtiatriðin hnyttin og hnitmiðuð - ekki langdregin eins og oft vill verða- og auðvitað stóðu Diddi og Hlöðver Smári sig rosalega vel ! Það er eitthvað leikaragen í þeim.......
Já það minnir á það að Erla Dögg er í London eins og ég sagði frá í síðustu færslu, hún er enn slöpp og með hálsbólgu - en hún tekur bara panodil af og til - og hún er að upplifa alveg frábæra hluti. Leiksýningarnar frábærar og leiklistaskólinn sem hún heimsótti varð ekki til að lækna leikarabakteríuna sem hún hefur haft frá því hún var mjög lítil
skilst að henni dauðlangi í skólann en fannst hann jafnframst óyfirstíganlega dýr...............árið kostar víst eina og hálfa milljón
.
Hún kemur svo heim á mánudaginn og ég hlakka mikið til að heyra ferðasöguna og vona bara að hún sé dugleg að taka myndir
.
Hafið það gott í þessu yndislega veðri í dag kæru vinir og verið góð við hvert annað
En allar líkur benda til þess að Margrét systir verði hjá mér næsta miðvikudag - og þá kemur hún með mér á mömmumorgun um morguninn og vonandi í badminton um kvöldið
.Á fimmtudaginn var árshátíð grunnskólans og ég verð bara að segja að þetta var bara ein skemmtilegasta og best heppnaðasta árshátíðin sem ég hef farið á hér !
Skemmtiatriðin hnyttin og hnitmiðuð - ekki langdregin eins og oft vill verða- og auðvitað stóðu Diddi og Hlöðver Smári sig rosalega vel ! Það er eitthvað leikaragen í þeim.......
Já það minnir á það að Erla Dögg er í London eins og ég sagði frá í síðustu færslu, hún er enn slöpp og með hálsbólgu - en hún tekur bara panodil af og til - og hún er að upplifa alveg frábæra hluti. Leiksýningarnar frábærar og leiklistaskólinn sem hún heimsótti varð ekki til að lækna leikarabakteríuna sem hún hefur haft frá því hún var mjög lítil
skilst að henni dauðlangi í skólann en fannst hann jafnframst óyfirstíganlega dýr...............árið kostar víst eina og hálfa milljón
. Hún kemur svo heim á mánudaginn og ég hlakka mikið til að heyra ferðasöguna og vona bara að hún sé dugleg að taka myndir
.Hafið það gott í þessu yndislega veðri í dag kæru vinir og verið góð við hvert annað
baka, baka, árshátíð......
28. febrúar 2008 klukkan 14:59
Í morgun klukkan hálf átta fór Erla Dögg til Englands. Hún flaug til Stansted og fór svo með rútu niður til London. Það er stíf dagskrá eiginlega allan tímann þannig að það verður nóg að gera - verst er að hún náði sér í flensu í gærkvöldi og er bara lasin
Ég heyrði í henni áðan, þá var hún fyrir utan hótelið og var bara ferlega slöpp - ég sagði henni að biðja bara leiklistarkennarann sinn að finna fyrir hana flensulyf eða eitthvað sem bara virkar á hana til að taka svo hún geti nú notið ferðarinnar. Hún fer á 3 leiksýningar, skoðar söfn og leikhús, fer í heimsókn í leiklistarskóla o.fl. Vonandi getur hún nýtt sér og notað ferðina
.
Í kvöld er árshátíð grunnskólans, það koma engir gestir til okkar í þetta sinn til að koma með okkur á árshátíðina, hún er á ómögulegum tíma fyrir fólk sem býr í bænum - hún er klukkan sex í kvöld. Það verður vonandi gaman.
Við vorum jafnvel að spá í að koma suður á morgun, Óskar Ingi þarf að kaupa sér bíl því hann seldi Erlu Dögg sinn en hann er á neyðarvaktinni núna og kemst líklega ekki.........ég gæti svosem farið en ég kem ekki tveimur bílum heim.........
Jæja ég verð víst að hætta að slæpast og fara að gera eitthvað!
Hafið það gott í dag
Ég heyrði í henni áðan, þá var hún fyrir utan hótelið og var bara ferlega slöpp - ég sagði henni að biðja bara leiklistarkennarann sinn að finna fyrir hana flensulyf eða eitthvað sem bara virkar á hana til að taka svo hún geti nú notið ferðarinnar. Hún fer á 3 leiksýningar, skoðar söfn og leikhús, fer í heimsókn í leiklistarskóla o.fl. Vonandi getur hún nýtt sér og notað ferðina
.Í kvöld er árshátíð grunnskólans, það koma engir gestir til okkar í þetta sinn til að koma með okkur á árshátíðina, hún er á ómögulegum tíma fyrir fólk sem býr í bænum - hún er klukkan sex í kvöld. Það verður vonandi gaman.
Við vorum jafnvel að spá í að koma suður á morgun, Óskar Ingi þarf að kaupa sér bíl því hann seldi Erlu Dögg sinn en hann er á neyðarvaktinni núna og kemst líklega ekki.........ég gæti svosem farið en ég kem ekki tveimur bílum heim.........
Jæja ég verð víst að hætta að slæpast og fara að gera eitthvað!
Hafið það gott í dag
Kominn tími á blogg?
26. febrúar 2008 klukkan 20:43
Það er af nógu að taka frá því síðasta færsla er skrifuð. Ég nenni nú ekki að skrifa allt saman, hef mikið að gera í skólanum núna.
Erla Dögg kom heim um helgina, hún fór með okkur á þorrablót í Árbliki á föstudagskvöldið og þar skemmtum við okkur mjög vel. Mér fannst alveg rosalega gaman
langt síðan ég hef farið út að skemmta mér og greinilega kominn tími til. Hljómsveitin var frábær og félagsskapurinn líka
. Heiða Berg passaði fyrir okkur og það gekk alveg ljómandi vel sem betur fer. Við vorum komin heim um þrjú og þá fékk Erla Dögg sér að borða (hún borðaði lítið af því sem var í boði á þorrablótinu) og á meðan fór Óskar Ingi í sturtu, síðan fór Erla Dögg að sofa, Óskar Ingi líka og ég dreif mig í sturtu - já við erum skrýtin en þegar maður þarf að labba í gegnum reykingmökkinn þegar maður fer heim - og lendir kannski á smá spjalli þar - þá bara er föst reykingarlykt í hárinu á manni og það munar rosalega miklu ef maður þvær það úr sér áður en maður fer að sofa, sefur betur og vaknar betur - þegar maður þarf ekki að finna lyktina af reykingunum í hárinu á sér
.
Erla Dögg keypti af okkur Toyotuna á mánudaginn, hún ætlaði að gera það á föstudaginn en þegar Oddur ætlaði að prufa bílinn hennar þá bara þegar hann setti í gang komu þvílík læti og reykur í framhaldinu. Málið var skoðað og þá kom í ljós að altanatorinn var fastur og reim slitnaði. Jörundur töframaður kom strax með fína lausn (við héldum að allt væri ónýtt) og sagði að það væri örugglega hægt að hreyfa ró sem er þarna og ef það væri hægt að losa hana þá væri örugglega nóg að kaupa bara nýja reim - þetta gerðist stundum þegar bíll væri búinn að standa lengi. Pabbi skoðaði þetta á laugardaginn og gat losað róna - sko ekki drykkjuróna heldur ró sem var á altanatornum
- og á mánudaginn fór Ingi tengdapabbi og keypti reimar og setti í. Bíllinn er þá kominn í lag og Erla Dögg búin að kaupa hann............... sem þýðir að við verðum að fara aftur í bílakaup
.
Annars er það að frétta að Erla Dögg er að fara til London á fimmtudaginn og kemur heim á mánudaginn. Hún er að fara með leiklistarhópnum sínum og þau fara á 3 leiksýningar og hitta leiklistarnemana sem eru í London. Þetta verður örugglega frábær ferð
Hlakka til að heyra ferðasöguna þegar hún kemur heim en samt skrýtið að hún sé að fara ein - eða sko án mömmu eða pabba......... en tíminn líður
.
Erla Dögg kom heim um helgina, hún fór með okkur á þorrablót í Árbliki á föstudagskvöldið og þar skemmtum við okkur mjög vel. Mér fannst alveg rosalega gaman
langt síðan ég hef farið út að skemmta mér og greinilega kominn tími til. Hljómsveitin var frábær og félagsskapurinn líka
. Heiða Berg passaði fyrir okkur og það gekk alveg ljómandi vel sem betur fer. Við vorum komin heim um þrjú og þá fékk Erla Dögg sér að borða (hún borðaði lítið af því sem var í boði á þorrablótinu) og á meðan fór Óskar Ingi í sturtu, síðan fór Erla Dögg að sofa, Óskar Ingi líka og ég dreif mig í sturtu - já við erum skrýtin en þegar maður þarf að labba í gegnum reykingmökkinn þegar maður fer heim - og lendir kannski á smá spjalli þar - þá bara er föst reykingarlykt í hárinu á manni og það munar rosalega miklu ef maður þvær það úr sér áður en maður fer að sofa, sefur betur og vaknar betur - þegar maður þarf ekki að finna lyktina af reykingunum í hárinu á sér
.Erla Dögg keypti af okkur Toyotuna á mánudaginn, hún ætlaði að gera það á föstudaginn en þegar Oddur ætlaði að prufa bílinn hennar þá bara þegar hann setti í gang komu þvílík læti og reykur í framhaldinu. Málið var skoðað og þá kom í ljós að altanatorinn var fastur og reim slitnaði. Jörundur töframaður kom strax með fína lausn (við héldum að allt væri ónýtt) og sagði að það væri örugglega hægt að hreyfa ró sem er þarna og ef það væri hægt að losa hana þá væri örugglega nóg að kaupa bara nýja reim - þetta gerðist stundum þegar bíll væri búinn að standa lengi. Pabbi skoðaði þetta á laugardaginn og gat losað róna - sko ekki drykkjuróna heldur ró sem var á altanatornum
- og á mánudaginn fór Ingi tengdapabbi og keypti reimar og setti í. Bíllinn er þá kominn í lag og Erla Dögg búin að kaupa hann............... sem þýðir að við verðum að fara aftur í bílakaup
.Annars er það að frétta að Erla Dögg er að fara til London á fimmtudaginn og kemur heim á mánudaginn. Hún er að fara með leiklistarhópnum sínum og þau fara á 3 leiksýningar og hitta leiklistarnemana sem eru í London. Þetta verður örugglega frábær ferð
Hlakka til að heyra ferðasöguna þegar hún kemur heim en samt skrýtið að hún sé að fara ein - eða sko án mömmu eða pabba......... en tíminn líður
.
Nýr bíll :-)
15. febrúar 2008 klukkan 17:11
Ég dreif mig suður í gær þegar ég var búin að fara með Kristrúnu Ingu í leikskólann, ég tók Jónas Vilberg með mér og Hugrúnu
. Gott að eiga svona vinkonu sem nennir að druslast út um allt með manni !
Við semsagt lögðum af stað suður klukkan 2 og vorum komin á bílasöluna klukkan 4. Ég skoðaði bílinn sem ég fór suður til að skoða og leist vel á- Ingi kom þá og skoðaði og leist líka bara vel á og það endaði þannig að ég keypti bara bílnn! Nú vonum við bara að hann sé jafn góður og hann lítur út fyrir að vera........
Við fórum svo í Bónus, Erla Dögg kom með okkur þangað, fórum svo í mosó til mömmu og pabba og pabbi passaði Jónas á meðan við hin keyrðum á bílasöluna að sækja nýja bílinn og mamma keyrði litla bílinn heim til sín og ég þann nýja.
Toyotan var semsagt svo skilin eftir í Mosó og við fórum heim á nýja bílnum. Það er Nissan Terrano II - Dísel.
Ég brunaði svo beint í saumaklúbb til Fanneyjar þegar ég kom heim - kom heim eitthvað rétt eftir klukkan 2 í nótt og þá frétti ég að Hlöðver Smári var búin að vera ælandi í 2 tíma - og hann hélt áfram til klukkan hálf sex í morgun - en virðist vera að jafna sig. Nú er klukkan fimm og hann ekkert búinn að æla síðan hálf sex í morgun.
Annars allt í góðu hér - Jónas Vilberg segir mér að vísu á hverjum degi að Magga ætli að koma í dag eða á morgun en það verðum við samt ekkert vör við ! thíhíhíhíhí
Hafið það gott um helgina og njótið hennar eins vel og þið getið!
. Gott að eiga svona vinkonu sem nennir að druslast út um allt með manni !Við semsagt lögðum af stað suður klukkan 2 og vorum komin á bílasöluna klukkan 4. Ég skoðaði bílinn sem ég fór suður til að skoða og leist vel á- Ingi kom þá og skoðaði og leist líka bara vel á og það endaði þannig að ég keypti bara bílnn! Nú vonum við bara að hann sé jafn góður og hann lítur út fyrir að vera........
Við fórum svo í Bónus, Erla Dögg kom með okkur þangað, fórum svo í mosó til mömmu og pabba og pabbi passaði Jónas á meðan við hin keyrðum á bílasöluna að sækja nýja bílinn og mamma keyrði litla bílinn heim til sín og ég þann nýja.
Toyotan var semsagt svo skilin eftir í Mosó og við fórum heim á nýja bílnum. Það er Nissan Terrano II - Dísel.
Ég brunaði svo beint í saumaklúbb til Fanneyjar þegar ég kom heim - kom heim eitthvað rétt eftir klukkan 2 í nótt og þá frétti ég að Hlöðver Smári var búin að vera ælandi í 2 tíma - og hann hélt áfram til klukkan hálf sex í morgun - en virðist vera að jafna sig. Nú er klukkan fimm og hann ekkert búinn að æla síðan hálf sex í morgun.
Annars allt í góðu hér - Jónas Vilberg segir mér að vísu á hverjum degi að Magga ætli að koma í dag eða á morgun en það verðum við samt ekkert vör við ! thíhíhíhíhí
Hafið það gott um helgina og njótið hennar eins vel og þið getið!
snjór, snjór, snjór og aftur snjór....
13. febrúar 2008 klukkan 21:52
Reyndar er komin smá rigning núna en það er búið að snjóa alveg rosalega og við þurfum að beygja okkur undir trén til að komast hingað heim því það er svo mikill snjór í garðinum að við erum komin upp að trjánum þegar við göngum heim að húsinu.
Hér er bara allt við það sama og ég veit bara ekkert hvað ég á að skrifa. Ég fór í Dalabúð í morgun á mömmumorgun og það var auðvitað jafn skemmtilegt og alltaf.
Ég hangi mikið í tölvunni þessa dagana og skoða bílasöluvefinn og er að reyna að finna bíl fyrir okkur. Það gengur nú svona og svona en vonandi verður eitthvað úr bílakaupum fyrir helgina.
Hlöðver er alltaf í skátunum, finnst voða gaman. Honum finnst líka gaman að elda og baka - og bara malla eitthvað í eldhúsinu.
Kristrún Inga er hætt með snuð
loksins, í annarri tilraun. Við höfum prufað þetta áður en það gekk bara hrikalega illa - hún var í uppundir 3 tíma að sofna á hverju kvöldi og það virtist ekkert ætla að lagast og hún átti bara hrikalega erfitt með þetta. Við ákváðum að hún fengi snuðið til að sofna og svo yrði það tekið af henni - það gekk lengi vel en svo var það farið að aukast aftur
.
Hún er núna búin að sofna án snuðsins frá því á mánudaginn og gengur eins og við er að búast misvel......ég var akkúrat trufluð í þessum skrifuðu orðum af henni - hún getur ekki sofnað og klukkan er 9:48......... hún fór að sofa um hálf níu. Hún fékk að fara í mömmu og pabba rúm.....sjáum hvort það gengur núna.
Jónas Vilberg er að reyna að hætta með bleyju - það gengur ekki of vel en sumir dagar ganga fínt !
Hann var nú bara með bleyju í dag því við vorum á miklum þvælingi og svo var leikskóli - en hann verður bleyjulaus á morgun. Hann fær verðlaun þegar hann pissar í wc og hann er svo sniðugur að hann hefur komið hálfri mínútu eftir að hann er búinn að pissa og segist þurfa aftur - hann vilji fá verðlaun!
Og svo er systir hans dugleg að biðja hann að fara á klósettið eða spurja hann hvort hann þurfi ekki að pissa því hún fær verðlaun með honum (hafa fengið smá gott í munninn.....).
Takk fyrir að vera svona dugleg að koma hingað á síðuna og kommenta.
- Guðrún
Hér er bara allt við það sama og ég veit bara ekkert hvað ég á að skrifa. Ég fór í Dalabúð í morgun á mömmumorgun og það var auðvitað jafn skemmtilegt og alltaf.
Ég hangi mikið í tölvunni þessa dagana og skoða bílasöluvefinn og er að reyna að finna bíl fyrir okkur. Það gengur nú svona og svona en vonandi verður eitthvað úr bílakaupum fyrir helgina.
Hlöðver er alltaf í skátunum, finnst voða gaman. Honum finnst líka gaman að elda og baka - og bara malla eitthvað í eldhúsinu.
Kristrún Inga er hætt með snuð
loksins, í annarri tilraun. Við höfum prufað þetta áður en það gekk bara hrikalega illa - hún var í uppundir 3 tíma að sofna á hverju kvöldi og það virtist ekkert ætla að lagast og hún átti bara hrikalega erfitt með þetta. Við ákváðum að hún fengi snuðið til að sofna og svo yrði það tekið af henni - það gekk lengi vel en svo var það farið að aukast aftur
.Hún er núna búin að sofna án snuðsins frá því á mánudaginn og gengur eins og við er að búast misvel......ég var akkúrat trufluð í þessum skrifuðu orðum af henni - hún getur ekki sofnað og klukkan er 9:48......... hún fór að sofa um hálf níu. Hún fékk að fara í mömmu og pabba rúm.....sjáum hvort það gengur núna.
Jónas Vilberg er að reyna að hætta með bleyju - það gengur ekki of vel en sumir dagar ganga fínt !
Hann var nú bara með bleyju í dag því við vorum á miklum þvælingi og svo var leikskóli - en hann verður bleyjulaus á morgun. Hann fær verðlaun þegar hann pissar í wc og hann er svo sniðugur að hann hefur komið hálfri mínútu eftir að hann er búinn að pissa og segist þurfa aftur - hann vilji fá verðlaun!
Og svo er systir hans dugleg að biðja hann að fara á klósettið eða spurja hann hvort hann þurfi ekki að pissa því hún fær verðlaun með honum (hafa fengið smá gott í munninn.....).
Takk fyrir að vera svona dugleg að koma hingað á síðuna og kommenta.
- Guðrún
Ja hérna hér !
07. febrúar 2008 klukkan 08:54
Já og það snjóar ! Ekki miklar fréttir svosem en það má ekki snjóa núna því ég þarf að komast suður á morgun og er bara á einum litlum framhjóladrifnum bíl !
Ég hef ekkert bloggað lengi en það er búið að vera nóg annað. Á bolludag þá lenti húsbóndinn á heimilinu í óhappi (eins og þið flest vitið örugglega), hann var á leið á fund á Hellissandi og í Álftafirðinum var hálka og í einni S-beygjunni þá bara rann bíllinn og valt niður. Hann fór líklega 2 1/2 veltu og endaði á toppnum í árfarvegi. Það var algjört kraftaverk að Óskar Ingi kom algerlega alheill útúr þessu slysi, hvorki mar né skráma. Það er að sjá á bílnum eins og hann hafi verið í verndarhjúp því minnst er bíllinn beyglaður við bílstjórasætið og eina rúðan sem ekki fór í mask var rúðan í bílstjórahurðinni !
Já, við þökkum Guði fyrir að ekki fór verr, það hefði svo auðveldlega gert það.
Bíllinn er semsagt ónýtur og tengdapabbi ráðlagði mér að prufa að auglýsa hann á barnalandi eða eitthvað svoleiðis og setja bara inn myndir.
Það er alveg ótrúlegt að ég setti hann inn þar seint í fyrrakvöld minnir mig og ég er búin að fá 2 fyrirspurnir um varahluti úr bílnum og eina um það hvað ég vilji fá fyrir hann !
Það gekk ekki svona hratt þegar ég ætlaði að selja hann á sínum tíma og auglýsti hann í heilu lagi á barnalandi!
En við sjáum hvað setur, gott væri að fá eitthvað smotterí fyrir hann - þó ekki væri nema bara fyrir flutningskostnaði, en öll sæti eru auðvitað í lagi og eitthvað meira - vélin skilst mér og eitthvað, en ég er svo heppin að eiga tengdapabba sem nennir að standa í því að vesenast í þessu fyrir okkur
.
Ég ætla semsagt suður á morgun (ef ég kemst á Toyotunni) og þar held ég að verði fjölskylduþorrablót hjá tengdó eða Önnu Björgu, síðan er þorrablót hér í Árbliki á laugardaginn og Heiða Berg var svo yndisleg að ætla að passa fyrir okkur
.
Það eru myndir af bílnum, bæði á slysstað og eftir að það var búið að koma honum hingað í Búðardal hér til vinstri undir linknum "myndaalbúmið mitt á netinu".
Farið varlega í umferðinni, snjónum og hálkunni - slysin gera ekki boð á undan sér !
Ég hef ekkert bloggað lengi en það er búið að vera nóg annað. Á bolludag þá lenti húsbóndinn á heimilinu í óhappi (eins og þið flest vitið örugglega), hann var á leið á fund á Hellissandi og í Álftafirðinum var hálka og í einni S-beygjunni þá bara rann bíllinn og valt niður. Hann fór líklega 2 1/2 veltu og endaði á toppnum í árfarvegi. Það var algjört kraftaverk að Óskar Ingi kom algerlega alheill útúr þessu slysi, hvorki mar né skráma. Það er að sjá á bílnum eins og hann hafi verið í verndarhjúp því minnst er bíllinn beyglaður við bílstjórasætið og eina rúðan sem ekki fór í mask var rúðan í bílstjórahurðinni !
Já, við þökkum Guði fyrir að ekki fór verr, það hefði svo auðveldlega gert það.
Bíllinn er semsagt ónýtur og tengdapabbi ráðlagði mér að prufa að auglýsa hann á barnalandi eða eitthvað svoleiðis og setja bara inn myndir.
Það er alveg ótrúlegt að ég setti hann inn þar seint í fyrrakvöld minnir mig og ég er búin að fá 2 fyrirspurnir um varahluti úr bílnum og eina um það hvað ég vilji fá fyrir hann !
Það gekk ekki svona hratt þegar ég ætlaði að selja hann á sínum tíma og auglýsti hann í heilu lagi á barnalandi!
En við sjáum hvað setur, gott væri að fá eitthvað smotterí fyrir hann - þó ekki væri nema bara fyrir flutningskostnaði, en öll sæti eru auðvitað í lagi og eitthvað meira - vélin skilst mér og eitthvað, en ég er svo heppin að eiga tengdapabba sem nennir að standa í því að vesenast í þessu fyrir okkur
.Ég ætla semsagt suður á morgun (ef ég kemst á Toyotunni) og þar held ég að verði fjölskylduþorrablót hjá tengdó eða Önnu Björgu, síðan er þorrablót hér í Árbliki á laugardaginn og Heiða Berg var svo yndisleg að ætla að passa fyrir okkur
.Það eru myndir af bílnum, bæði á slysstað og eftir að það var búið að koma honum hingað í Búðardal hér til vinstri undir linknum "myndaalbúmið mitt á netinu".
Farið varlega í umferðinni, snjónum og hálkunni - slysin gera ekki boð á undan sér !
Bolla, bolla...
03. febrúar 2008 klukkan 23:18
Já bolludagur á morgun og fyrsti skammtur af bollum í ofninum núna
. Ég hefði bakað í dag en við fórum fram á Fellsenda í dag og eftir það fórum við með Hirti og Lilju í Hudadal að kíkja eftir kind með tvö lömb sem hafði sést uppí fjalli. Það var komið leitarfólk í fjallið og við fylgdumst með. Við fundum fljótlega kindurnar með því að horfa í kíkinn frá veginum en við gátum ekkert sagt við þau tvö sem voru í fjallinu að leita því það er ekki gemsasamband þarna ! En þau vissu hvað þau voru að gera og fundu kindurnar en þær voru svo þrjóskar að þær vildu bara alls ekki fara niður ! Voru greinilega ekki að spá í að það var verið að bjarga þeim og koma í húsaskjól þar sem þær fengju hlýju og tuggu
en allt gekk þetta að lokum sem betur fer en erfitt var að tjónka við þær og það var líka djúpur snjór þarna og klettar. Við keyrðum Hjört og Lilju svo heim og vorum sjálf komin heim um hálf sex. Þá tók bara við að hafa til kvöldmat, læra og koma svo krökkunum í rúmið, læra smá meira og svo fékk ég gesti - Heiðrún Sandra og Dagga komu - við Dagga erum að hjálpa Erlu Dögg og Heiðrúnu að panta sér ferð til Tenerife! Já þær eru að fara þangað í sumar með tveimur vinum Heiðrúnar............ æi þetta er að fullorðnast allt. Úff veit ekki hvernig ég verð á meðan þær eru þarna en svona er þetta bara, þær verða átján í sumar, Heiðrún í maí og Erla Dögg í júní þannig að þær ráða sér víst sjálfar þá þannig að við Dagga fáum bara að vera með í að skoða hótel og svoleiðis. Held að við séum búnar að komast að þeirri niðurstöðu að þær fari með Plúsferðum og verði á Castalia Park / Los Brezos hvað sem það nú er - en hljómar fínt og okkur líst vel á lýsingu og myndir.
En best að fara að kíkja á bollurnar!
Bolla, bolla, bolla, bolla!
. Ég hefði bakað í dag en við fórum fram á Fellsenda í dag og eftir það fórum við með Hirti og Lilju í Hudadal að kíkja eftir kind með tvö lömb sem hafði sést uppí fjalli. Það var komið leitarfólk í fjallið og við fylgdumst með. Við fundum fljótlega kindurnar með því að horfa í kíkinn frá veginum en við gátum ekkert sagt við þau tvö sem voru í fjallinu að leita því það er ekki gemsasamband þarna ! En þau vissu hvað þau voru að gera og fundu kindurnar en þær voru svo þrjóskar að þær vildu bara alls ekki fara niður ! Voru greinilega ekki að spá í að það var verið að bjarga þeim og koma í húsaskjól þar sem þær fengju hlýju og tuggu
en allt gekk þetta að lokum sem betur fer en erfitt var að tjónka við þær og það var líka djúpur snjór þarna og klettar. Við keyrðum Hjört og Lilju svo heim og vorum sjálf komin heim um hálf sex. Þá tók bara við að hafa til kvöldmat, læra og koma svo krökkunum í rúmið, læra smá meira og svo fékk ég gesti - Heiðrún Sandra og Dagga komu - við Dagga erum að hjálpa Erlu Dögg og Heiðrúnu að panta sér ferð til Tenerife! Já þær eru að fara þangað í sumar með tveimur vinum Heiðrúnar............ æi þetta er að fullorðnast allt. Úff veit ekki hvernig ég verð á meðan þær eru þarna en svona er þetta bara, þær verða átján í sumar, Heiðrún í maí og Erla Dögg í júní þannig að þær ráða sér víst sjálfar þá þannig að við Dagga fáum bara að vera með í að skoða hótel og svoleiðis. Held að við séum búnar að komast að þeirri niðurstöðu að þær fari með Plúsferðum og verði á Castalia Park / Los Brezos hvað sem það nú er - en hljómar fínt og okkur líst vel á lýsingu og myndir.En best að fara að kíkja á bollurnar!
Bolla, bolla, bolla, bolla!
Ykkur getur ekki langað í kaffi endalaust.......
30. janúar 2008 klukkan 16:14
Ég veit ekki hvort Erla Dögg þarf að selja meira en hún hefur þá bara samband við ykkur, Hugrún og Ásdís
.
Allavegana ég ætla bara að setja inn stutt blogg núna - er á fullu að læra, nýta tímann sem krakkarnir eru báðir í leikskólanum.
Allt fínt hér, snjór og snjór - það kom að vísu rok og rigning um daginn eins og alls staðar annars staðar á landinu held ég bara og minnkaði snjóinn helling en það fór bara að snjóa aftur daginn eftir og hefur snjóað eitthvað á hverjum degi síðan held ég bara.
Ég sleppti þorrablótinu hér á laugardaginn, sá svo auðvitað eftir því á laugardaginn en þá var það bara of seint........ það var auðvitað alveg rosalega gaman
En Hugrún og Jörundur eru í næstu nefnd þannig að ég bara VERÐ að fara þá!
Málið var reyndar það að strákarnir áttu að fara suður og ég vissi að Hugrún sem er svo dugleg og viljug að passa fyrir okkur þegar þarf var að fara á þorrablótið , þannig að við vorum ekki með neina pössun - það var stór ástæða fyrir því að við ákváðum að fara ekki.
Okkur langar mikið á Suðurdalablótið sem er 9. febrúar en erum ekki með pössun þar sem það er líka pabbahelgi þá....... æi ég bara sé til hvort við komumst þangað.
Enn eitt óveðrið á að koma í kvöld
en maður er nú hættur að kippa sér upp við það
.
Hey - eitt annað, Margrét systir fékk mig til að skrá mig á Facebook og þetta er bara snilld held ég thíhíhí - það er sér Fellaskólagrúbba og þar eru saman komnir gamlir nemendur úr Fellaskóla - líka gamlar skólamyndir, þar á meðal mynd úr 9. bekk - þar erum við Yngvi hennar Margrétar saman í bekk hehehhe alveg voða sæt og fín!
Ég kann að vísu ekkert rosa vel á þetta en Linda frænka er snillingur á þetta eins og annað svona tengt og ég fæ bara hjálp hjá henni ef ég þarf
Sjáumst á Facebook !
- Guðrún
. Allavegana ég ætla bara að setja inn stutt blogg núna - er á fullu að læra, nýta tímann sem krakkarnir eru báðir í leikskólanum.
Allt fínt hér, snjór og snjór - það kom að vísu rok og rigning um daginn eins og alls staðar annars staðar á landinu held ég bara og minnkaði snjóinn helling en það fór bara að snjóa aftur daginn eftir og hefur snjóað eitthvað á hverjum degi síðan held ég bara.
Ég sleppti þorrablótinu hér á laugardaginn, sá svo auðvitað eftir því á laugardaginn en þá var það bara of seint........ það var auðvitað alveg rosalega gaman
En Hugrún og Jörundur eru í næstu nefnd þannig að ég bara VERÐ að fara þá!Málið var reyndar það að strákarnir áttu að fara suður og ég vissi að Hugrún sem er svo dugleg og viljug að passa fyrir okkur þegar þarf var að fara á þorrablótið , þannig að við vorum ekki með neina pössun - það var stór ástæða fyrir því að við ákváðum að fara ekki.
Okkur langar mikið á Suðurdalablótið sem er 9. febrúar en erum ekki með pössun þar sem það er líka pabbahelgi þá....... æi ég bara sé til hvort við komumst þangað.
Enn eitt óveðrið á að koma í kvöld
en maður er nú hættur að kippa sér upp við það
.Hey - eitt annað, Margrét systir fékk mig til að skrá mig á Facebook og þetta er bara snilld held ég thíhíhí - það er sér Fellaskólagrúbba og þar eru saman komnir gamlir nemendur úr Fellaskóla - líka gamlar skólamyndir, þar á meðal mynd úr 9. bekk - þar erum við Yngvi hennar Margrétar saman í bekk hehehhe alveg voða sæt og fín!
Ég kann að vísu ekkert rosa vel á þetta en Linda frænka er snillingur á þetta eins og annað svona tengt og ég fæ bara hjálp hjá henni ef ég þarf

Sjáumst á Facebook !
- Guðrún
VANTAR ÞIG KAFFI???
25. janúar 2008 klukkan 18:08
Vantar þig kaffi? Erla Dögg er með fjáröflun fyrir Londonferðina sem leiklistarhópurinn hennar er að fara í og er að selja bæði kaffi og kaffibaunir frá te og kaffi - held að tveir pokar séu á 1500.... en er ekki alveg viss.
snjór, snjór, snjór og aftur snjór.......
24. janúar 2008 klukkan 16:34
Já nú snjóar og snjóar........ og ég sem leyfði í gærkvöldi (þá snjóaði ekki) að Hlöðver Smári færi heim með Sindra (hann á heima í sveitinni) í dag. Úff ég á eftir að leggja í hann og sækja hann, þar er ekkert búið að moka og mér skildist á mömmu hans Sindra sem ég heyrði í áðan að það væri orðið þungfært.....hehe gaman gaman 
Lítið að frétta hér annars, strákarnir fara suður á morgun, líklega bara með rútunni því ég fer suður á sunnudaginn til að fara með mín þrjú yngstu á Skilaboðaskjóðuna í Þjóðleikhúsinu, Margrét systir ætlar líka að fara
Læt þetta duga í bili - þarf að fara að búa mig undir að sækja Kristrúnu í leikskólann og Hlöðver í sveitina - já og Didda inn að Laugum, hann fór þangað og ætlaði að vera þar til að hann færi á ball í Saurbænum í kvöld en það er hætt við ballið þannig að ég þarf að sækja hann.......
Verið góð við hvort annað