Nei, er ekki hætt hér...
19. október 2008 klukkan 18:10
En það er bara svo mikið að gera. Ég fór semsagt í vettvangsnámið fyrir 2 vikum. Minn heimaskóli er Reykjakot í Mosó. Frábær leikskóli og þessi vika sem ég var þar, var mjög skemmitleg og fróðleg. Ég fer aftur þangað 10. nóvember og verð aðra 5 daga. Ég kom heim á föstudagskvöldinu eftir vettvangsnámið en fór svo aftur á sunnudagskvöldinu. Á mánudeginum var staðlota, sem þýðir að ég verð að mæta í skólann. Ég var í skólanum frá mánudegi til föstudags. Alveg rosalega gaman, en líka mjög krefjandi og erfitt. Ég finn það núna hvað ég er þreytt, örugglega bara spennufall. Í þessari viku þurfti ég að flytja ljóð, segja sögu og halda ræðu. Sagan og ræðan blaðlaust! Fyrir framan áhorfendur! Ég vann í rannsóknarritgerðinni sem við fengum til baka
fékk ekki eins mikið fyrir hana og ég vildi, eða sko við - við erum tvær með hana, en erum mikið sáttari eftir að við fréttum hvað fólk var almennt að fá fyrir ritgerðina - komumst að því að við erum í hærri kantinum....... en höfum tækifæri á að hækka okkur um einn með því að laga og skila aftur. En við urðum mest fúlar yfir því að það eru gerðar athugasemdir við hluti sem við erum búnar að fá staðfestingu á hjá kennara að við áttum eiginlega ekki að fá athugasemdir við........ en að laga samt einkunnina, NEI það gera þeir ekki!
Þetta er víst bara fyrir okkur gert að reyna eins og þeir gátu að finna eitthvað að til að við fáum ekki of háa einkunn segja þeir - og að fá 10, það er bara ekki séns í þessu segja þeir - hafa aldrei gefið 10 og ætla ekkert að fara að byrja á því núna segja þeir, það er semsagt ekki hægt að fá 10......
En þá er það líka spurning hvað maður nennir að leggja á sig fyrir þennan eina í viðbót........
Ég skilaði líka 10 blaðsíðna skýrslu fyrir fag sem heitir Leikskólinn - og fór í leikskóla sem heitir Álfasteinn og er í Hafnarfirði því þar hitti ég eina sem er með mér í Þroska- og námssálarfræði. Við þurftum að gera rannsókn þar. Þannig að næsta mál í sambandi við það er að vinna fræðilega skýrslu sem á að vera um það bil 9 blaðsíður.
Á föstudaginn var próf í skólanum. Það fór fram í opinni málstofu. Það þýðir að það var opið fyrir alla. Við vorum öll í stofu og aftast var borð með kennurum, prófdómara. Þar var líka videovél sem tók allt upp. Þarna þurftum við að koma upp, ganga að ræðupúltinu og fyrst þá komum við upp í hópum, 2-4 í hóp. Ég var með Maríu. Við komum upp eins og hinir og fyrst kom ég og kynnti mig og sagði frá því hvað við ætluðum að ræða um, hvers vegna við völdum þetta og eitthvað svoleiðis. Þetta var blaðlaus kynning. Síðan las ég upp útdrátt sem við höfðum gert úr grein Marðar Árnasonar, „Að borða eða að éta“ úr bókinni Málkrókum. Skemmtileg grein
. Muna að horfa í augun á fólkinu - ekki gleyma kennurunum - tala skýrt, ekki of skýrt þó, ekki tala of hratt, en ekki heldur of hægt, ekki skjálfa, ekki gleyma neinu........ úff en þetta tókst, og svo var komið að Maríu að lesa sinn útdrátt og svo var hún með lokaorðin blaðlaus. Svona gekk þetta fyrri hluta málstofunnar þar til allir voru búinir. Þá var smá pása, og svo var byrjað aftur. Þá vorum við kölluð upp, ein í einu (og einn) og þá áttum við að lesa upp ljóð. Tjá það, koma með lýsingar - þ.e. koma því frá okkur með tjáningu. Aftur þurfti maður að muna, líta af og til á blaðið, tala skýrt, en ekki of skýrt, réttan hrynjanda miðað við ljóðið, smá hreyfingar ef þarf og breyta raddblæ sem passar við ljóðið, horfa í augun á áhorfendum - ekki gleyma kennurunum - og, og, og, og,....... en þetta tókst líka! Til gamans ætla ég að setja hér inn ljóðið sem ég lærði og fór með í málstofunni, þetta er nefninlega bara hið skemmtilegasta ljóð. Það heitir Garðaljóð og er eftir Tómas Guðmundsson:
Gosbrunnarnir syngja
og glitra í þúsund ljósum
garðarnir baða sumarlangt
í mjallahvítum rósum.
Geislarnir koma hlaupandi
eins og fætur toga
ef heimskir, litlir skuggar
út á gangstéttina voga.
Þá langar út í sólina
og læðast hægt á tánum
og leggjast svo til hvíldar
undir kastaníutrjánum.
(Tómas Guðmundsson)
Ég kom svo heim á föstudagskvöldið. Rosa gaman að koma heim aftur, hitta krakkana og karlinn
. En á meðan ég var í bænum þá hitti ég oft Erlu Dögg og Didda, það var auðvitað gaman líka. Á fimmtudagskvöldið komu þau í mat til mömmu og pabba og þá kom Kiddi líka, kærastinn hennar Erlu Daggar. Það var gaman að hitta hann loksins.
Á laugardaginn fór ég með krakkana í krakkasport inná Laugum. Svo vorum við bara í rólegheitum heima. Í dag fórum við öll fimm í sunnudagaskólann og eftir hádegismatinn fórum við Óskar Ingi og litlu krakkarnir inn að Staðarfelli í messu. Við fórum svo í kaffi þar á eftir. Eftir að við komum heim þá er Óskar Ingi auðvitað búinn að vera að vinna, Hlöðver Smári er í tölvunni, krakkarnir litlu að kríta og að horfa á Hlöðver og ég að læra......eða reyndar að koma þessu bloggi hingað líka.
Jæja, þetta er orðið allt of langt, ég þarf að fara að huga að kjötinu í pottinum og gera karrýsósuna......
Hafið það gott kæru vinir,
Guðrún
fékk ekki eins mikið fyrir hana og ég vildi, eða sko við - við erum tvær með hana, en erum mikið sáttari eftir að við fréttum hvað fólk var almennt að fá fyrir ritgerðina - komumst að því að við erum í hærri kantinum....... en höfum tækifæri á að hækka okkur um einn með því að laga og skila aftur. En við urðum mest fúlar yfir því að það eru gerðar athugasemdir við hluti sem við erum búnar að fá staðfestingu á hjá kennara að við áttum eiginlega ekki að fá athugasemdir við........ en að laga samt einkunnina, NEI það gera þeir ekki!
Þetta er víst bara fyrir okkur gert að reyna eins og þeir gátu að finna eitthvað að til að við fáum ekki of háa einkunn segja þeir - og að fá 10, það er bara ekki séns í þessu segja þeir - hafa aldrei gefið 10 og ætla ekkert að fara að byrja á því núna segja þeir, það er semsagt ekki hægt að fá 10......En þá er það líka spurning hvað maður nennir að leggja á sig fyrir þennan eina í viðbót........

Ég skilaði líka 10 blaðsíðna skýrslu fyrir fag sem heitir Leikskólinn - og fór í leikskóla sem heitir Álfasteinn og er í Hafnarfirði því þar hitti ég eina sem er með mér í Þroska- og námssálarfræði. Við þurftum að gera rannsókn þar. Þannig að næsta mál í sambandi við það er að vinna fræðilega skýrslu sem á að vera um það bil 9 blaðsíður.
Á föstudaginn var próf í skólanum. Það fór fram í opinni málstofu. Það þýðir að það var opið fyrir alla. Við vorum öll í stofu og aftast var borð með kennurum, prófdómara. Þar var líka videovél sem tók allt upp. Þarna þurftum við að koma upp, ganga að ræðupúltinu og fyrst þá komum við upp í hópum, 2-4 í hóp. Ég var með Maríu. Við komum upp eins og hinir og fyrst kom ég og kynnti mig og sagði frá því hvað við ætluðum að ræða um, hvers vegna við völdum þetta og eitthvað svoleiðis. Þetta var blaðlaus kynning. Síðan las ég upp útdrátt sem við höfðum gert úr grein Marðar Árnasonar, „Að borða eða að éta“ úr bókinni Málkrókum. Skemmtileg grein
. Muna að horfa í augun á fólkinu - ekki gleyma kennurunum - tala skýrt, ekki of skýrt þó, ekki tala of hratt, en ekki heldur of hægt, ekki skjálfa, ekki gleyma neinu........ úff en þetta tókst, og svo var komið að Maríu að lesa sinn útdrátt og svo var hún með lokaorðin blaðlaus. Svona gekk þetta fyrri hluta málstofunnar þar til allir voru búinir. Þá var smá pása, og svo var byrjað aftur. Þá vorum við kölluð upp, ein í einu (og einn) og þá áttum við að lesa upp ljóð. Tjá það, koma með lýsingar - þ.e. koma því frá okkur með tjáningu. Aftur þurfti maður að muna, líta af og til á blaðið, tala skýrt, en ekki of skýrt, réttan hrynjanda miðað við ljóðið, smá hreyfingar ef þarf og breyta raddblæ sem passar við ljóðið, horfa í augun á áhorfendum - ekki gleyma kennurunum - og, og, og, og,....... en þetta tókst líka! Til gamans ætla ég að setja hér inn ljóðið sem ég lærði og fór með í málstofunni, þetta er nefninlega bara hið skemmtilegasta ljóð. Það heitir Garðaljóð og er eftir Tómas Guðmundsson:Gosbrunnarnir syngja
og glitra í þúsund ljósum
garðarnir baða sumarlangt
í mjallahvítum rósum.
Geislarnir koma hlaupandi
eins og fætur toga
ef heimskir, litlir skuggar
út á gangstéttina voga.
Þá langar út í sólina
og læðast hægt á tánum
og leggjast svo til hvíldar
undir kastaníutrjánum.
(Tómas Guðmundsson)
Ég kom svo heim á föstudagskvöldið. Rosa gaman að koma heim aftur, hitta krakkana og karlinn
. En á meðan ég var í bænum þá hitti ég oft Erlu Dögg og Didda, það var auðvitað gaman líka. Á fimmtudagskvöldið komu þau í mat til mömmu og pabba og þá kom Kiddi líka, kærastinn hennar Erlu Daggar. Það var gaman að hitta hann loksins. Á laugardaginn fór ég með krakkana í krakkasport inná Laugum. Svo vorum við bara í rólegheitum heima. Í dag fórum við öll fimm í sunnudagaskólann og eftir hádegismatinn fórum við Óskar Ingi og litlu krakkarnir inn að Staðarfelli í messu. Við fórum svo í kaffi þar á eftir. Eftir að við komum heim þá er Óskar Ingi auðvitað búinn að vera að vinna, Hlöðver Smári er í tölvunni, krakkarnir litlu að kríta og að horfa á Hlöðver og ég að læra......eða reyndar að koma þessu bloggi hingað líka.
Jæja, þetta er orðið allt of langt, ég þarf að fara að huga að kjötinu í pottinum og gera karrýsósuna......
Hafið það gott kæru vinir,
Guðrún
þá er að koma að útlegð hjá mér
03. október 2008 klukkan 18:51
Á mánudaginn byrja ég í vettvangsnámi í leikskólanum Reykjakoti í Mosfellsbæ. Ég hlakka til og vona bara að það verði eins gaman og ég býst við. Ég kem til með að vinna í sex tíma á dag en tímasetningin er ekki orðin alveg ljós ennþá. Ég verð þarna í viku núna, og svo aftur seinna.
Ég fer svo heim næstu helgi, en það er stutt stopp þar, því ég fer aftur suður á sunnudagskvöldinu og fer í staðlotu í skólanum þá viku. Þannig að það er næstum því tvær vikur í útlegð.
Skólinn gengur bara ágætlega held ég, svolítið mikið að gera, en það er ekki við öðru að búast, því þetta er fullt nám og það er nú bara þannig að það er sambærilegt við fulla vinnu....... en bara gaman samt.
Það sem verra er, er það að ég skil bara ekkert í því að þvotturinn brýtur sig ekki saman sjálfur
ég er búin að prufa að bíða og allt það, en ekkert gerist. Ég verð víst að reyna að taka á þeim málum á eftir....
Annars allt gott hér, hér snjóaði í fyrradag - en það fór fljótlega en akkúrat núna er líka snjókoma en mér skilst að það ætli ekkert að staldra við - þetta fer aftur um helgina.
Erna vinkona kom í fyrradag og var hér með kynningu um kvöldið. Það var alveg rosa gaman að fá hana - og að sjálfsögðu Önnu Kolbrúnu lika - og það mætti fullt af konum á kynninguna. Margar keyptu jólagjafir og allar urðu hrifnar af vörunum hjá Ernu. Enda rosa skemmtilegar vörur og sniðguar. Netverslunin hennar er www.assan.is endilega kíkið þangað og skoðið úrvalið
.
Eigið góða helgi og njótið birtunnar sem snjórinn kemur með!
Dalakveðja,
Guðrún
Ég fer svo heim næstu helgi, en það er stutt stopp þar, því ég fer aftur suður á sunnudagskvöldinu og fer í staðlotu í skólanum þá viku. Þannig að það er næstum því tvær vikur í útlegð.
Skólinn gengur bara ágætlega held ég, svolítið mikið að gera, en það er ekki við öðru að búast, því þetta er fullt nám og það er nú bara þannig að það er sambærilegt við fulla vinnu....... en bara gaman samt.
Það sem verra er, er það að ég skil bara ekkert í því að þvotturinn brýtur sig ekki saman sjálfur
ég er búin að prufa að bíða og allt það, en ekkert gerist. Ég verð víst að reyna að taka á þeim málum á eftir....Annars allt gott hér, hér snjóaði í fyrradag - en það fór fljótlega en akkúrat núna er líka snjókoma en mér skilst að það ætli ekkert að staldra við - þetta fer aftur um helgina.
Erna vinkona kom í fyrradag og var hér með kynningu um kvöldið. Það var alveg rosa gaman að fá hana - og að sjálfsögðu Önnu Kolbrúnu lika - og það mætti fullt af konum á kynninguna. Margar keyptu jólagjafir og allar urðu hrifnar af vörunum hjá Ernu. Enda rosa skemmtilegar vörur og sniðguar. Netverslunin hennar er www.assan.is endilega kíkið þangað og skoðið úrvalið
.Eigið góða helgi og njótið birtunnar sem snjórinn kemur með!
Dalakveðja,
Guðrún
