Þá er skólinn byrjaður
14. janúar 2009 klukkan 14:27
Þá er allt að komast í sama farið. Mamman á heimilinu upptekin allar stundir og börnin sæta færis að ná í hana.... hehe. Nei þetta er ekki alveg svo slæmt, en samt. Ég fæ stundum samviskubit yfir því að vera svona upptekin að læra, mér finnst ég sinna börnunum of lítið og gefa þeim of lítinn tíma - til hvers? Jú, til að læra að sinna annarra manna börnum og sinna þeim!! Hljómar hálf öfugsnúið sko! En, ég geri mitt besta að reyna að læra sem mest þessa fjóra tíma sem þau litlu eru í leikskólanum og láta heimilisstörfin þá vera. En stundum þarf samt að sinna öðru þá, eins og að skutla eða sækja stóra strákinn í íþróttir eða heimsóknir.
Héðan frá okkur er allt gott að frétta, en við bíðum alltaf spennt eftir að fá að vita eitthvað um bílinn sem Erla Dögg keypti sér í október. Hún semsagt keypti bíl þá en hann er búinn að vera bilaður siðan....... svo kom það í ljós þegar átti að fara að skipta um kúplingu í honum að gírkassinn var ónýtur - en það ætti að vera annaðhvort tryggingamál hjá fyrrum eiganda og ef ekki, þá kostar þetta víst bara að ganga hart að fyrri eiganda því að þetta er víst klárlega leyndur galli því ekki er hægt að skoða status á olíu á gírkasa við venjulega skoðun fyrir kaup á bíl. En það er víst alveg greinilegt að gírkassinn er ónýtur vegna þess að hann hefur verið olíulaus LENGI og það er ekkert sem við gátum séð fyrir en í smurbók segir að hann hafi verið smurður fyrir 4000 km síðan og þá einnig ath. með oliu á gírkassanum..... bifvélavirkjar segja að hann á þá ekki að hafa verið olíulaus í langan tíma nema gírkassinn leki verulega mikið og þá á fyrrum eigandi að hafa orðið var við það. En ef gírkassinn lekur ekki, þá hafa örugglega orðið mistök í smurningunni og gleymst að ath. með olíuna á gírkassanum og ef svo er þá er þetta tryggingamál. En bíllinn er nú búinn að bíða meðan þetta er í athugun í einn og hálfan mánuð og Erla Dögg bíllaus á meðan.... En þetta skýrist vonandi í þessari viku.
Annars er bara allt í rólegheitum hér og ég skelli einhverju meira spennandi hér inn bráðlega.
Eigið góðan dag kæru vinir!

hmmm
07. janúar 2009 klukkan 23:09
Mamma benti mér á það í gær hve langt væri síðan ég hefði bloggað
. Það hefur bara verið hjá mér eins og hjá öðrum að það hefur bara verið rosalega mikið að gera.
En ég ætla að reyna að telja eitthvað upp:
Ég kláraði prófin fljótlega í desember og síðasta einkunn kom í hús á miðnætti á sunnudag. Mér gekk mjög vel og var mikið létt eftir það.
Kristrún Inga fékk hlaupabólu þann 21 desember...... en var orðin góð á aðfangadag - nema að hún var með slatta af bólum ennþá en hætt að klæja og það sem fyglir hlaupabólunni.
Diddi kom heim 20 desember og var til 27 desember hjá okkur. Það var alveg frábært að fá hann heim, hann var ljúfur og yndislegur og allir glaðir að fá smá tíma með honum.
Erla Dögg kom á þorláksmessukvöld og fór á jóladagseftirmiðdag. Það var auðvitað frábært að fá hana líka, ljúfa og góða .
Á jóladag fór ég með öll börnin mín yfir í Stykkishólm í hangikjötsboðið árlega. Þar fengum við dýrindis hangiket og með því. Óskar Ingi komst að sjálfsögðu ekki með, hann var auðvitað að vinna. En við hin vorum öll og það er orðinn stór hópurinn.
Mamma og pabbi tóku Erlu Dögg og Hlöðver með sér suður.
Laugardaginn 3ja janúar komu fyrstu bólurnar á Jónas Vilberg. Þá var hlaupabólan mætt til hans. Þetta fannst mér afleit tímasetning þó að mig hafi lengi grunað að hann myndi byrja um áramótin. En það er nú svo, að það ræður enginn tímasetningunni og þarna byrjuðu bólur að dreifa sér um hann allan. Þær komu þó frekar hægt til að byrja með, en um það leyti sem ég var að fara suður til Reykjavíkur fór hann versnandi. Á sunnudagsnóttina tók Óskar Ingi hann fram um klukkan 2 til að ég gæti sofið eitthvað því ég þurfti að vakna klukkan hálf sex um morguninn til að bruna af stað til Reykjavíkur í staðlotu. Æi, elsku kallinn, nú komu bólur og bólur og bólur. Hann varð allur undirlagður, tók þetta mikið verr en Kristrún Inga. Hann var sárlasinn með þessu og veinaði bara þegar Kalmínið var borið á hann. Við vitum það núna, en vissum ekki þá, að í sumum tilvikum þá getur sviðið undan því og það er það sem gerðist með Jónas. Á þriðjudagskvöldið var hann svo slæmur að það var hringt í lækni sem kom heim og skoðaði hann. Læknirinn gaf honum verkjastillandi í fljótandi formi og ofnæmislyf við kláðanum. Jónas er bara búinn að vera verulega lasinn, en þessi lyf frá lækninum hafa slegið á þetta og núna er hann ekki orðinn góður, en þó betri. Allt á uppleið, en mikið hefur verið erfitt að vera hér í bænum og geta ekkert gert og hann svona lasinn fyrir vestan.......
Á mánudaginn byrjaði ég semsagt í staðlotu í skólanum. Á þessari önn er ég í 4 námskeiðum: Listir og barnamenning, Félagsfræði og skólasaga, Upplýsingatækni og miðlun, Aðferðafræði og menntarannsóknir. Takk fyrir takk!
Mér líst vel á sumt, en mun verr á annað. En þetta er eitthvað sem verður að ljúka af og það er bara eins gott að vera jákvæður og takast á við þetta allt saman.
En, nú hef ég ekki tíma í meira blogg í bili, bið að heilsa ykkur ÖLLUM sem lesið
Guðrún
. Það hefur bara verið hjá mér eins og hjá öðrum að það hefur bara verið rosalega mikið að gera.En ég ætla að reyna að telja eitthvað upp: